Ljósmóðir.is notar vafrakökur til að bæta notendaupplifun og stuðla að frekari þróun heimasíðunnar.
Upplýsingar um vafrakökur
23. janúar 2021
Hæhæ. Ég er gengin rúmlega 7v á leið og hef verið að taka fólinsýru. Ég kláraði svo krukkuna um daginn og þurfti að kaupa nýja og það var bara til frá einu merki sem ég hef ekki reynslu af. Í hverri töflu eru 800 mígrógrömm en ekki 400 eins og í hinum sem ég tók. Er 800 of mikið eða er mér óhætt að taka það?
Sæl
Fólat er ekki skaðlegt í of stórum skömmtum, en stórir skammtar af því geta mögulega falið einkenni um skort á B-12 vítamíni og einnig komið í veg fyrir einkenni Sinks úr fæðu. Því er best að halda sig við ráðleggingar og taka inn 400 míkrógrömm á dag ásamt því að borða fólatríka fæðu. Mögulega geturðu tekið hálfa töflu ef þú nærð að taka hana í tvennt.
Kær kveðja, Jóhanna María Friðriksdóttir, ljósmóðir
Einnig viljum við benda á bæklingaröð Ljósmæðrafélags Íslands og greinarnar "Ljósmóðirin skrifar um", þar er að finna svör við mörgum af algengustu fyrirspurnunum.
Ljósmóðir mun leitast við að svara fyrirspurnum sem fyrst en athugið að það geta liðið allt að tvær vikur frá því að fyrirspurn er send inn og þar til svar er birt hér á vefnum. Svör við fyrirspurnum eru aðeins ætluð til fræðslu og upplýsingar en eiga á engan hátt að koma í stað faglegrar aðstoðar ljósmæðra, lækna eða annars fagfólks.
Því miður getum við ekki svarað öllum fyrirspurnum sem berast en leitumst fyrst og fremst við að svara fyrirspurnum um efni sem ekki hefur verið spurt um áður. Svör við fyrirspurnum birtast hér á síðunni ásamt fyrirspurninni sjálfri.