Ljósmóðir.is notar vafrakökur til að bæta notendaupplifun og stuðla að frekari þróun heimasíðunnar.
Upplýsingar um vafrakökur
18. febrúar 2021
Hæ ég var að komast af því ég væri ólett, komin um 5v. Er nýbúin að fá mér kettling sem kom bólusettur og ormahreinsaður, aldrei farið út, er ss innikisa. Þarf ég að vera með þvilikar áhyggjur núna því ég hef verið að þrífa kattarskítinn eða á þetta bara við um óbólusettar eða úti kisur ? Og er alveg í lagi að vera utan í honum og knúsast og svona ? kv ein stressuð með kettling
Sæl, nú veit ég ekki hvaða bólusetningar kettlingurinn þinn hefur fengið. Það er engin ástæða til að hafa áhyggjur af því sem er búið og gert, en til þess að vera alveg örugg ráðlegg ég þér að fá aðra til þess að hreinsa kattaskítinn út meðgönguna. Það er í lagi að knúsast í honum.
Kær kveðja, Hafdís Guðnadóttir, ljósmóðir.
Einnig viljum við benda á bæklingaröð Ljósmæðrafélags Íslands og greinarnar "Ljósmóðirin skrifar um", þar er að finna svör við mörgum af algengustu fyrirspurnunum.
Ljósmóðir mun leitast við að svara fyrirspurnum sem fyrst en athugið að það geta liðið allt að tvær vikur frá því að fyrirspurn er send inn og þar til svar er birt hér á vefnum. Svör við fyrirspurnum eru aðeins ætluð til fræðslu og upplýsingar en eiga á engan hátt að koma í stað faglegrar aðstoðar ljósmæðra, lækna eða annars fagfólks.
Því miður getum við ekki svarað öllum fyrirspurnum sem berast en leitumst fyrst og fremst við að svara fyrirspurnum um efni sem ekki hefur verið spurt um áður. Svör við fyrirspurnum birtast hér á síðunni ásamt fyrirspurninni sjálfri.