Ljósmóðir.is notar vafrakökur til að bæta notendaupplifun og stuðla að frekari þróun heimasíðunnar.
Upplýsingar um vafrakökur
11. maí 2021
hæhæ Ég fór eitt sinn í magaspeglun þar sem kom í ljós að ég væri með lítið þindarslit sem olli bakflæði. Nú er ég komin 28 vikur og er nýlega farin að finna fyrir særindum og sundum kemur óþægilegur stingur undir rifbeinum fyrir miðju. Ég er aum á þessu svæði og húðin viðkvæm. Mig grunar að það sé vegna þindarslitsins. Er eitthvað við þessu að gera? Bkv.
Sæl
Bakflæði er mjög algengur fylgikvilli meðgöngu. Ef þú ert með smá þindarslit getur verið að það versni nú á meðgöngu vegna aukins þrýstings frá barninu.
Endilega prófaðu að taka inn sýrubindandi lyf til og sjáðu hvort einkennin minnki. Omeprasol er það lyf sem við mælum með að konur taki á meðgöngu, en best er að taka það daglega. Omeprasol fæst án lyfseðils í apóteki. Einnig er gott að eiga til Rennie eða Gaviscon (töflur eða mixtúru) til þess að taka þegar einkenni eru slæm, en þau lyf virka strax á meðan Omeprasol virkar yfir lengri tíma.
Ef þessi verkur lagast ekki skaltu endilega láta kíkja á þig hjá lækni eða heyra í þinni ljósmóður.
Gangi þér vel
Jóhanna María Friðriksdóttir, ljósmóðir
Einnig viljum við benda á bæklingaröð Ljósmæðrafélags Íslands og greinarnar "Ljósmóðirin skrifar um", þar er að finna svör við mörgum af algengustu fyrirspurnunum.
Ljósmóðir mun leitast við að svara fyrirspurnum sem fyrst en athugið að það geta liðið allt að tvær vikur frá því að fyrirspurn er send inn og þar til svar er birt hér á vefnum. Svör við fyrirspurnum eru aðeins ætluð til fræðslu og upplýsingar en eiga á engan hátt að koma í stað faglegrar aðstoðar ljósmæðra, lækna eða annars fagfólks.
Því miður getum við ekki svarað öllum fyrirspurnum sem berast en leitumst fyrst og fremst við að svara fyrirspurnum um efni sem ekki hefur verið spurt um áður. Svör við fyrirspurnum birtast hér á síðunni ásamt fyrirspurninni sjálfri.