Ljósmóðir.is notar vafrakökur til að bæta notendaupplifun og stuðla að frekari þróun heimasíðunnar.
Upplýsingar um vafrakökur
12. janúar 2022
Sælar og takk fyrir ykkar frábæra vef, alltaf gott að geta leitað til ykkar eftir upplýsingum á meðgöngu og eftir fæðingu. Mig langaði aðeins að spyrjast fyrir um örvunarbólusetningu á tímabilinu í kringum fæðingu. Ég var svo óheppin að vera nýbúin að komast að því að ég væri ólétt þegar ég var upphaflega boðuð í fyrstu bólusetningu gegn Covid-19 og þurfti því að fresta henni fram að 2. þriðjungi meðgöngunnar. Ég fór í fyrri sprautuna strax sama dag og ég hafði fengið meðgöngulengd staðfesta í 12 vikna sónar og svo í seinni bólusetningu 3 vikum eftir það, í lok ágúst. Það þýðir að það verður ekki kominn tími á örvunarskammt hjá mér fyrr en rétt eftir fæðingu (um 2 vikum eftir settan dag), sé miðað við að 6 mánuðir líði á milli 2. bólusetningar og örvunarbólusetningar. Nú er fjöldi smita í hæstu hæðum og gert ráð fyrir að svo verði áfram komandi vikur eða mánuði. Þar sem ég er gengin 35 vikur fór ég að velta því fyrir mér hvort skynsamlegt væri að flýta örvunarbólusetningu og fá hana fyrir fæðingu þannig að barnið fæðist með betri vörn en ella? 5 mánuðir verða liðnir frá 2. bólusetningarskammti þegar ég verð gengin 37+5. Með kærri kveðju og þökkum fyrir svörin, Lísa
Sæl og takk fyrir fyrirspurnina. Örvunarbólusetningu er í lagi að fá séu að lágmarki 5–6 mánuðir frá því grunnbólusetningu lauk. Það væri því í lagi fyrir þig að fá örvunarskammt á 38. viku þegar 5 mánuðir hafa liðið frá seinasta skammti.
Samkvæmt sóttvarnarlækni ættu eftirfarandi hópar ekki að þiggja örvunarbólusetningu nema að höfðu samráði við lækni:
Þú getur lesið betur um bólusetningu barnshafandi kvenna hér.
Ég hvet þið til að hafa samband við ljósmóður þín í meðgönguvernd fyrir frekari ráðleggingar í samráði við þínar aðsæður.
Bestu kveðjur, Ilmur Björg Einarsdóttir, ljósmóðir.
Einnig viljum við benda á bæklingaröð Ljósmæðrafélags Íslands og greinarnar "Ljósmóðirin skrifar um", þar er að finna svör við mörgum af algengustu fyrirspurnunum.
Ljósmóðir mun leitast við að svara fyrirspurnum sem fyrst en athugið að það geta liðið allt að tvær vikur frá því að fyrirspurn er send inn og þar til svar er birt hér á vefnum. Svör við fyrirspurnum eru aðeins ætluð til fræðslu og upplýsingar en eiga á engan hátt að koma í stað faglegrar aðstoðar ljósmæðra, lækna eða annars fagfólks.
Því miður getum við ekki svarað öllum fyrirspurnum sem berast en leitumst fyrst og fremst við að svara fyrirspurnum um efni sem ekki hefur verið spurt um áður. Svör við fyrirspurnum birtast hér á síðunni ásamt fyrirspurninni sjálfri.