Ljósmóðir.is notar vafrakökur til að bæta notendaupplifun og stuðla að frekari þróun heimasíðunnar.
Upplýsingar um vafrakökur
17. janúar 2022
Daginn! Ég er komin 30 vikur og er búin að vera með mikinn niðurgang. Vaknaði 8 og fyrir 12 var eg buin að hlaupa 3 á klósettið. Er þetta bara venjulegt og tengist meðgöngunni ekkert eða ætti eg að hafa samband við ljósmóður?
Góðan daginn og takk fyrir fyrirspurnina. Niðurgangur á meðgöngu getur verið af völdum hormónabreytinga og líkamlegra breytinga. Þó getur ástæða niðurgangs auðvitað einnig tengst öðrum þáttum sem ekki tengjast meðgöngunni líkt og veikindum og undirliggjandi vandamálum í meltingarvegi. Það er ekki gott fyrir þungaða að vera með niðurgang í langan tíma. Ég hvet þig til að halda vel að þér vökva og næringu og vera í sambandi við ljósmóður eða lækni ef þú ert með niðurgang í meira en 48klst, færð háan hita, samdrætti með verkjum eða ef þú upplifir einhvers konar vanlíðan eða áhyggjur.
Bestu kveðjur, Ilmur Björg Einarsdóttir, ljósmóðir.
Einnig viljum við benda á bæklingaröð Ljósmæðrafélags Íslands og greinarnar "Ljósmóðirin skrifar um", þar er að finna svör við mörgum af algengustu fyrirspurnunum.
Ljósmóðir mun leitast við að svara fyrirspurnum sem fyrst en athugið að það geta liðið allt að tvær vikur frá því að fyrirspurn er send inn og þar til svar er birt hér á vefnum. Svör við fyrirspurnum eru aðeins ætluð til fræðslu og upplýsingar en eiga á engan hátt að koma í stað faglegrar aðstoðar ljósmæðra, lækna eða annars fagfólks.
Því miður getum við ekki svarað öllum fyrirspurnum sem berast en leitumst fyrst og fremst við að svara fyrirspurnum um efni sem ekki hefur verið spurt um áður. Svör við fyrirspurnum birtast hér á síðunni ásamt fyrirspurninni sjálfri.