Ljósmóðir.is notar vafrakökur til að bæta notendaupplifun og stuðla að frekari þróun heimasíðunnar.
Upplýsingar um vafrakökur
14. júlí 2022
Góðan dag. Eg hef alltaf verið á reglulegum blæðingum en er tæplega 3v vikum of sein og 5 óléttupróf neikvæð.. Eg er ung og á eitt barn fyrir og ég var gengin 5v með 2 þykkar línur þegar ég var 11 dögum fram yfir með barnið mitt.. þannig hvað gæti verið að? ætli ég sé þunguð? Mkb
Góðan dag og takk fyrir fyrirspurnina,
Best er að bíða og sjá hvort þú fáir jákvætt óléttupróf. Ef það kemur ekki til og blæðingar hafa ekki hafist þá ráðlegg ég þér að leita til kvensjúkdómalæknis til frekari skoðunar.
Algengara er að fá fals neikvætt óléttupróf heldur en falskt jákvætt. Best er að taka prófið að morgni til, þá er þéttnin í þvaginu sem mest og líklegast að svarið sé réttast. Sjá má hér.
Gangi þér vell.
Bestu kveðjur, Elfa Lind Einarsdóttir, ljósmóðir.
Einnig viljum við benda á bæklingaröð Ljósmæðrafélags Íslands og greinarnar "Ljósmóðirin skrifar um", þar er að finna svör við mörgum af algengustu fyrirspurnunum.
Ljósmóðir mun leitast við að svara fyrirspurnum sem fyrst en athugið að það geta liðið allt að tvær vikur frá því að fyrirspurn er send inn og þar til svar er birt hér á vefnum. Svör við fyrirspurnum eru aðeins ætluð til fræðslu og upplýsingar en eiga á engan hátt að koma í stað faglegrar aðstoðar ljósmæðra, lækna eða annars fagfólks.
Því miður getum við ekki svarað öllum fyrirspurnum sem berast en leitumst fyrst og fremst við að svara fyrirspurnum um efni sem ekki hefur verið spurt um áður. Svör við fyrirspurnum birtast hér á síðunni ásamt fyrirspurninni sjálfri.