Góðan dag Okkur kærasta mínum langar mikið í barn en höfum samt ekki verið að reyna alveg upp á dag, þá meina ég að við höfum ekki farið til læknis að láta athuga með okkur, ekki fengið nein lyf né tekið inn hormóna til að auka egglos eða hvað sem það á að gera. Ekkert svoleiðis, höfum bara verið að sofa saman nánast daglega án allra varna í um 8 mánuði. Í desember semsagt hætti ég alveg á getnaðarvörn og fór að fylgjast með egglosi og allt svoleiðis. Fyrir þann tíðahring sem við ákváðum að láta reyna var ég á pillunni í 5 ár og svo NuvaRing í 1 ár. Ég er mjög mjög hrædd um að það hafi einhver áhrif á ófrjósemi eða annað þó svo það sé ekki viðurkennt... Í dag eru um 8 mánuðir síðan ég var síðast a getnaðarvörn, ég hef verið a mjög miklum blæðingum síðustu tíðahringi og síðasta egglos tímabil hjá mér (samkvæmt dagatali) fékk eg svakalega verki, gat varla gengið og grét úr verkjum. Núna eru um 6 dagar í næsta egglos hjá mér og ég er svakalega hrædd og kvíðin fyrir því ef ég fæ svona mikla verki aftur. Ég fór ekki til læknis útaf þessu en verkirnir voru samt í um 2-3 daga. Ég hef heyrt mikið um að fólk sé að reyna í kringum mig án árangurs og er þetta greinilega svakalega algengt. Ég hef talað við fólk sem eg treysti um þetta mál og ég fæ þau svör oftast að ég eigi að hætta að reyna þá gerist þetta. Þá kemur þetta. Að þetta taki tíma og bla bla. En málið er að þegar ég er að sofa hjá þá hugsa ég ekki neitt um að ég sé að reyna að verða ólétt, það er mjög afslappað og við hugsum mjög lítið um það en svo verðum við leið þegar ég byrja a blæðingum. Vinkona mín er ólétt núna og ætluðum við að verða samferða en nú er hún að fara eiga pg ekkert að frétta hjá mér ennþá. Þetta er ótrúlega ósanngjarnt en ég hef verið að hugsa að þetta kemur bara þegar það kemur og reyni að hugsa um kosti þessa. Mig langar þess vegna að spurja hvort þig gruni eitthvað hvað gæti verið að hrjá okkur eða mig samkvæmt þessum útksýringum. Ég hef verið að reyna að fá tíma hjá kvennsjúkdómalækni en allt uppbókað hjá honum/þeim nema eftir marga mánuði. Þetta er ótrúlega dapurt ferli. Takk fyrir æðislegan vef, hann er ótrúlega hjálplegur.
Góðan dag og takk fyrir fyrirspurnina,
Mismunandi er hvað tekur langan tíma fyrir par að verða ófrísk. Talið er að um 85% para verði ólétt eftir að reyna í 12 mánuði og ef það tekst ekki á þeim tíma er ráðlagt að hafa samband við kvensjúkdómalækni upp á frekari aðstoð/rannsóknir.
Hér eru upplýsingar um frjósemi. Ráðlagt er að hafa samfarir á egglostímabili, sem algengast er að sé sirka 11.-16.degi tíðahrings en getur verið mismunandi milli einstaklinga.
Hjá sumum breytist slímhúðin í leggöngum og hægt er að greina egglostímabil á þann veg. Aðrir kjósa að nota egglospróf sem til eru í apótekum og fleiri búðum. Í þeim prófum er mælt egglos hormón í þvagi sem segir til um hvort líkaminn sé að fá egglos eða ekki í tíðahringnum.
Þetta getur verið mjög erfitt tímabil að reyna að verða þunguð. Mikilvægt er að þið sem par ræðið vel saman og hlúið að ykkur. Það getur verið styttri bið að hringja á stærri læknastofur þar sem nokkrir kvensjúkdómalæknar vinna saman á og óska eftir næsta lausa tíma.
Gangi ykkur vel.
Bestu kveðjur, Elfa Lind Einarsdóttir, ljósmóðir.