Ljósmóðir.is notar vafrakökur til að bæta notendaupplifun og stuðla að frekari þróun heimasíðunnar.
Upplýsingar um vafrakökur
02. september 2022
Sælar, ég er gengin 8 vikur og er búin að vera að taka hárkúr með gula miðanum. Er það í lagi eða ætti ég að hætta?
Góðan daginn og til hamingju með þungunina.
Í hárkúr vítamíninu er ekki nægilegt magn af fólínsýru eins og ráðlagt er á meðgöngu (15 míkrógrömm í stað 400 míkrógrömm) og einnig er þari eitt af innihaldsefnunum sem ekki er ráðlagt að taka á meðgöngu þar sem það getur innihaldið of mikið joð og getur einnig innihaldið önnur óæskileg efni.
Ég ráðlegg þér frekar að taka inn fólínsýru í sér töflum/hylkjum þar sem þú færð ráðlagt magn (400 míkrógrömm) einnig ef þú ert ekki að taka inn d-vítamín að gera það. Gangi þér vel.
Bestu kveðjur, Elfa Lind Einarsdóttir, ljósmóðir.
Einnig viljum við benda á bæklingaröð Ljósmæðrafélags Íslands og greinarnar "Ljósmóðirin skrifar um", þar er að finna svör við mörgum af algengustu fyrirspurnunum.
Ljósmóðir mun leitast við að svara fyrirspurnum sem fyrst en athugið að það geta liðið allt að tvær vikur frá því að fyrirspurn er send inn og þar til svar er birt hér á vefnum. Svör við fyrirspurnum eru aðeins ætluð til fræðslu og upplýsingar en eiga á engan hátt að koma í stað faglegrar aðstoðar ljósmæðra, lækna eða annars fagfólks.
Því miður getum við ekki svarað öllum fyrirspurnum sem berast en leitumst fyrst og fremst við að svara fyrirspurnum um efni sem ekki hefur verið spurt um áður. Svör við fyrirspurnum birtast hér á síðunni ásamt fyrirspurninni sjálfri.