Ljósmóðir.is notar vafrakökur til að bæta notendaupplifun og stuðla að frekari þróun heimasíðunnar.
Upplýsingar um vafrakökur
05. febrúar 2023
Sælar ég er komin 17 vikur og er með verki öðrumegin eins og túrverki.. er búin að vera slaka á í dag (sunnudagur) og þessir verkir byrjuðu bara alltí einu og eru búnir að vera í einhverja 3 tíma?
Góðan dag og takk fyrir fyrirspurnina,
Vægir túrverkir geta komið á meðgöngu vegna þess að legið er að stækka svo hratt. Mörgum finnst þeir verkir vera eins og vægir túrverkir og það er alveg eðlilegt. Einnig geta komið verkir öðrum megin við nárann við hreyfingu sem kallast togverkir sem eru vegna þess að legböndin (liðböndin) sem halda leginu á sínum stað teygjast á meðgöngunni. Mikilvægt er að hlusta á líkamann á meðgöngunni, ef þú ert með verki að hvíla líkamann og drekka vel af vökva.
Ef verkirnir eru að aukast eða þeim fylgir blæðing eða óeðlileg útferð þá ráðlegg ég þér að hafa samband við ljósmóður í meðgönguvernd. Gangi þér vel.
Bestu kveðjur, Elfa Lind Einarsdóttir, ljósmóðir.
Einnig viljum við benda á bæklingaröð Ljósmæðrafélags Íslands og greinarnar "Ljósmóðirin skrifar um", þar er að finna svör við mörgum af algengustu fyrirspurnunum.
Ljósmóðir mun leitast við að svara fyrirspurnum sem fyrst en athugið að það geta liðið allt að tvær vikur frá því að fyrirspurn er send inn og þar til svar er birt hér á vefnum. Svör við fyrirspurnum eru aðeins ætluð til fræðslu og upplýsingar en eiga á engan hátt að koma í stað faglegrar aðstoðar ljósmæðra, lækna eða annars fagfólks.
Því miður getum við ekki svarað öllum fyrirspurnum sem berast en leitumst fyrst og fremst við að svara fyrirspurnum um efni sem ekki hefur verið spurt um áður. Svör við fyrirspurnum birtast hér á síðunni ásamt fyrirspurninni sjálfri.