Spurt og svarað

02. nóvember 2023

Þungunarrof

Góða kvöldið. Ég var að komast að því að ég er þunguð og finnst það alla ekki tímabært - er gengin rúmar 5 vikur samkvæmt útreikningi. Hvernig fer þungunarrof fram komin þetta stutt à leið?

Sæl og takk fyrir fyrirspurnina, 

Best er að hafa samband við Kvenlækningadeild Landspítalans. Þar ættir þú að geta óskað eftir aðstoð varðandi þungunarrof. Hér á síðu deildarinnar undir flipanum þungunarrof hægra megin á síðunni (neðarlega) má finna símanúmer sem á að hringja í og næstu skref. Tvenns konar meðferð er í boði fyrir þungarrof, með lyfjum eða aðgerð. Yfirleitt er fyrsta val að nota lyf en þá er hægt að framkvæma það heima fyrir 9.viku meðgöngu. 

Gangi þér vel og kær kveðja, Elfa Lind Einarsdóttir, ljósmóðir

Senda fyrirspurn
Allir reitir verða að vera fylltir útSenda
Fyrirspurnin þín hefur verið send.
Fannstu ekki svar?

Einnig viljum við benda á bæklingaröð Ljósmæðrafélags Íslands og greinarnar "Ljósmóðirin skrifar um", þar er að finna svör við mörgum af algengustu fyrirspurnunum.

Ljósmóðir mun leitast við að svara fyrirspurnum sem fyrst en athugið að það geta liðið allt að tvær vikur frá því að fyrirspurn er send inn og þar til svar er birt hér á vefnum. Svör við fyrirspurnum eru aðeins ætluð til fræðslu og upplýsingar en eiga á engan hátt að koma í stað faglegrar aðstoðar ljósmæðra, lækna eða annars fagfólks.

Því miður getum við ekki svarað öllum fyrirspurnum sem berast en leitumst fyrst og fremst við að svara fyrirspurnum um efni sem ekki hefur verið spurt um áður. Svör við fyrirspurnum birtast hér á síðunni ásamt fyrirspurninni sjálfri.