Ljósmóðir.is notar vafrakökur til að bæta notendaupplifun og stuðla að frekari þróun heimasíðunnar.
Upplýsingar um vafrakökur
20. nóvember 2011
Hæ hæ og takk fyrir frábæran þráð! Hjálpaði mér mikið þegar að ég var ólétt og gerir enn. Ég er að fara að hreyfa mig aftur eftir meðgönguna, grennast og ég er alltaf eitthvað að narta í mat. Það er eins og ég verði aldrei södd og var mér bent á þessar töflur Chromium picrolinate. Þær eiga að laga blóðsykurinn og þá hætti ég að vilja alltaf vera að borða. Mín spurning er sú hvort að ég megi taka þessar töflur inn þar sem ég er með barn á brjósti?
Með þökkum fyrir allt D.
Sæl og blessuð D!
Já, það er allt í lagi að taka þetta inn. Þetta er eitt af snefilefnunum. Rannsóknir sýna að þéttni þess hækkar ekki í mjólk þótt móðir taki það inn.
Bestu óskir.Katrín Edda Magnúsdóttir,ljósmóðir og brjóstagjafaráðgjafi,20. nóvember 2011.
Einnig viljum við benda á bæklingaröð Ljósmæðrafélags Íslands og greinarnar "Ljósmóðirin skrifar um", þar er að finna svör við mörgum af algengustu fyrirspurnunum.
Ljósmóðir mun leitast við að svara fyrirspurnum sem fyrst en athugið að það geta liðið allt að tvær vikur frá því að fyrirspurn er send inn og þar til svar er birt hér á vefnum. Svör við fyrirspurnum eru aðeins ætluð til fræðslu og upplýsingar en eiga á engan hátt að koma í stað faglegrar aðstoðar ljósmæðra, lækna eða annars fagfólks.
Því miður getum við ekki svarað öllum fyrirspurnum sem berast en leitumst fyrst og fremst við að svara fyrirspurnum um efni sem ekki hefur verið spurt um áður. Svör við fyrirspurnum birtast hér á síðunni ásamt fyrirspurninni sjálfri.