Ljósmóðir.is notar vafrakökur til að bæta notendaupplifun og stuðla að frekari þróun heimasíðunnar.
Upplýsingar um vafrakökur
01. desember 2004
Hæhæ og takk fyrir góðan vef.Ég var að velta fyrir mér hvenær sé í lagi að stunda kynlíf eftir keisara?? Ég hef bara séð spurningar um kynlíf eftir venjulega fæðingu...er það kannski það sama sem gildir, bara þegar maður er tilbúinn?? Ég er eitthvað svo hrædd við að prufa þar sem það koma jú samdrættir í legið við fullnægingu og ég er svo hrædd um að það sé ekki gróið eða eitthvað.Takk fyrir
Komdu sæl og takk fyrir að leita til okkar.
Það sama gildir um kynlíf eftir fæðingu með keisara og fæðingu um leggöng. Það er allt í lagi að byrja þegar konan treystir sér til.
Samdrættir eru í leginu eftir fæðinguna til að stöðva blæðingu og minnka legið. Samdrættir við fullnægingu eru ekkert frábrugðnir þessum samdráttum nema ef eitthvað er þá eru þeir kannski ekki eins kröftugir. Það er því í góðu lagi að stunda kynlíf þegar þú treystir þér til eftir keisarann.
Kveðja, Rannveig B. Ragnarsdóttir, hjúkrunarfræðingur og ljósmóðir.Yfirfarið í júní 2020
Einnig viljum við benda á bæklingaröð Ljósmæðrafélags Íslands og greinarnar "Ljósmóðirin skrifar um", þar er að finna svör við mörgum af algengustu fyrirspurnunum.
Ljósmóðir mun leitast við að svara fyrirspurnum sem fyrst en athugið að það geta liðið allt að tvær vikur frá því að fyrirspurn er send inn og þar til svar er birt hér á vefnum. Svör við fyrirspurnum eru aðeins ætluð til fræðslu og upplýsingar en eiga á engan hátt að koma í stað faglegrar aðstoðar ljósmæðra, lækna eða annars fagfólks.
Því miður getum við ekki svarað öllum fyrirspurnum sem berast en leitumst fyrst og fremst við að svara fyrirspurnum um efni sem ekki hefur verið spurt um áður. Svör við fyrirspurnum birtast hér á síðunni ásamt fyrirspurninni sjálfri.