Ljósmóðir.is notar vafrakökur til að bæta notendaupplifun og stuðla að frekari þróun heimasíðunnar.
Upplýsingar um vafrakökur
28. júní 2015
Góðan daginn, getið þið sagt mér hvort að það gæti haft áhrif á egg sem er að reyna að festast/haldast að ég lyfti manneskju nokkrum sinnum á dag í aðhlynningarstarfi? Við höfum verið að reyna í nokkra mánuði og ég veit að þetta getur tekið sinn tíma og að það er margt sem hefur áhrif en núna í seinasta hring veit ég að við stunduðum heimaleikfimi á egglosdag og dagana fyrir og eftir en það gekk ekki og ég fór að hafa áhyggjur að því vinnan mín gæti verið að koma í veg fyrir að egg nái að festa sig/halda sér þegar ég er að lyfta svona þungu. Getur það verið? Ég vil taka það fram að ég hef að sjálfsögðu ákveðið að halda ekki áfram í þessari vinnu eftir að ég verð ólétt. Takk fyrir góðan vef
Heil og sæl, Þú átt að geta gert allt það sem þú ert von að gera án þess að það hafi áhrif. Það er alltaf gott að lifa sem heilbrigðistu lífi þegar stefnt er að þungun. Ert þú farin að taka fólínsýru?? Ef ekki ráðlegg ég þér að byrja á því. Gangi þér vel og vonandi tekst ykkur frjóvgun sem fyrst.
Einnig viljum við benda á bæklingaröð Ljósmæðrafélags Íslands og greinarnar "Ljósmóðirin skrifar um", þar er að finna svör við mörgum af algengustu fyrirspurnunum.
Ljósmóðir mun leitast við að svara fyrirspurnum sem fyrst en athugið að það geta liðið allt að tvær vikur frá því að fyrirspurn er send inn og þar til svar er birt hér á vefnum. Svör við fyrirspurnum eru aðeins ætluð til fræðslu og upplýsingar en eiga á engan hátt að koma í stað faglegrar aðstoðar ljósmæðra, lækna eða annars fagfólks.
Því miður getum við ekki svarað öllum fyrirspurnum sem berast en leitumst fyrst og fremst við að svara fyrirspurnum um efni sem ekki hefur verið spurt um áður. Svör við fyrirspurnum birtast hér á síðunni ásamt fyrirspurninni sjálfri.