Ljósmóðir.is notar vafrakökur til að bæta notendaupplifun og stuðla að frekari þróun heimasíðunnar.
Upplýsingar um vafrakökur
01. júlí 2015
Hæ, hæ, er komin tæpar 10 vikur á leið og get ekki hætt að hugsa um harðfisk! er í lagi að borða harðfisk á meðgöngu og þá aðallega ýsu?
Heil og sæl, það hafa ekki verið gefnar út viðvaranir varðani harðfiskát á meðgöngu þó að harðfiskur sé tæknilega séð hrár fiskur. En af því að harðfiskur er unninn úr hráum fiski er ekki hægt að útiloka að bakterían listería finnist í honum. Það er því erfitt að ráðleggja annað en að fara varlega í harðfiskát á meðgöngu. Gangi þér vel.
Einnig viljum við benda á bæklingaröð Ljósmæðrafélags Íslands og greinarnar "Ljósmóðirin skrifar um", þar er að finna svör við mörgum af algengustu fyrirspurnunum.
Ljósmóðir mun leitast við að svara fyrirspurnum sem fyrst en athugið að það geta liðið allt að tvær vikur frá því að fyrirspurn er send inn og þar til svar er birt hér á vefnum. Svör við fyrirspurnum eru aðeins ætluð til fræðslu og upplýsingar en eiga á engan hátt að koma í stað faglegrar aðstoðar ljósmæðra, lækna eða annars fagfólks.
Því miður getum við ekki svarað öllum fyrirspurnum sem berast en leitumst fyrst og fremst við að svara fyrirspurnum um efni sem ekki hefur verið spurt um áður. Svör við fyrirspurnum birtast hér á síðunni ásamt fyrirspurninni sjálfri.