Ljósmóðir.is notar vafrakökur til að bæta notendaupplifun og stuðla að frekari þróun heimasíðunnar.
Upplýsingar um vafrakökur
03. júlí 2015
Hversu nákvæmt er sónað með settan dag og hvenar getnaður átti sér stað?:)
Þegar verið er að ákveða meðgöngulengd er alltaf farið eftir því sem sónarinn segir. Það getur skeikað aðeins frá því sem móðirin hefur reiknað út því að bæði getur sæðið lifað í nokkra daga í líkama móðurinnar og hitt eggið síðar og einnig getur frumuklasinn sem verður að barni tekið smá pásu í skiptingunni og því getur skeikað nokkrum dögum á þvi hvenær móðir telur að getnaður hafi orðið og því sem sónar segir. Vona að þetta svari spurningunni.
Einnig viljum við benda á bæklingaröð Ljósmæðrafélags Íslands og greinarnar "Ljósmóðirin skrifar um", þar er að finna svör við mörgum af algengustu fyrirspurnunum.
Ljósmóðir mun leitast við að svara fyrirspurnum sem fyrst en athugið að það geta liðið allt að tvær vikur frá því að fyrirspurn er send inn og þar til svar er birt hér á vefnum. Svör við fyrirspurnum eru aðeins ætluð til fræðslu og upplýsingar en eiga á engan hátt að koma í stað faglegrar aðstoðar ljósmæðra, lækna eða annars fagfólks.
Því miður getum við ekki svarað öllum fyrirspurnum sem berast en leitumst fyrst og fremst við að svara fyrirspurnum um efni sem ekki hefur verið spurt um áður. Svör við fyrirspurnum birtast hér á síðunni ásamt fyrirspurninni sjálfri.