Ljósmóðir.is notar vafrakökur til að bæta notendaupplifun og stuðla að frekari þróun heimasíðunnar.
Upplýsingar um vafrakökur
05. júlí 2015
Ég tók þungunarpróf fyrir 5 dögum og fékk jákvætt - ætti samkvæmt mínum útreikningum að vera komin 4 vikur og 5 daga en það byrjaði að blæða smá í morgun. litið og frekar þunnt virkar ekki eins og venjulegar blæðingar, er ég að missa eða er þetta eðlilegt :(
Heil og sæl, því miður get ég ekki sagt til um það. Það getur blætt aðeins án þess að neitt sé að. Ef að blæðingin eykst og verkir bætast við er líklegra að þú sért að missa. Það er bara tíminn sem leiðir í ljós hvernig þetta fer. Þú getur í raun ekki gert neitt nema að bíða og sjá til. Gangi þér vel.
Einnig viljum við benda á bæklingaröð Ljósmæðrafélags Íslands og greinarnar "Ljósmóðirin skrifar um", þar er að finna svör við mörgum af algengustu fyrirspurnunum.
Ljósmóðir mun leitast við að svara fyrirspurnum sem fyrst en athugið að það geta liðið allt að tvær vikur frá því að fyrirspurn er send inn og þar til svar er birt hér á vefnum. Svör við fyrirspurnum eru aðeins ætluð til fræðslu og upplýsingar en eiga á engan hátt að koma í stað faglegrar aðstoðar ljósmæðra, lækna eða annars fagfólks.
Því miður getum við ekki svarað öllum fyrirspurnum sem berast en leitumst fyrst og fremst við að svara fyrirspurnum um efni sem ekki hefur verið spurt um áður. Svör við fyrirspurnum birtast hér á síðunni ásamt fyrirspurninni sjálfri.