Ljósmóðir.is notar vafrakökur til að bæta notendaupplifun og stuðla að frekari þróun heimasíðunnar.
Upplýsingar um vafrakökur
29. júlí 2015
Góðan daginn ég er nýbúin að komast að því að ég er ólétt og er í skýjunum yfir því :) Er soldið áhyggjufull samt sem áður. ég er að vinna á bráðamóttöku. ég er að velta fyrir með með virusa sem eru hættulegir fóstrinu sérstaklega cytomegalovirus. er hægt að mæla með blóðprufu hvort ég sé með mótefni fyrir því og etv öðrum virusum sem eru hættulegir fóstrinu. ég er hjúkrunarfræðingur og er því oftast fyrsti heilbrigðisstarfsmaðurinn sem hittir sjuklinginn þegar hann kemur inn, þannig að ekki er komin smitgát þegar eg sé hann og umgnagast hann, þannig auðvelt að smitast :/ er soldið áhyggjufull með þetta
Heil og sæl og til hamingju með óléttuna. Jú það er hægt að mæla mótefni í blóði og ég ráðlegg þér að ræða það við ljósmóður í meðgönguverndinni á þinni heilsugæslustöð. Það er sjaldgæft að smitast af CMV á meðgöngu en ég ráðlegg þér að viðhafa góðan handþvott til að reyna að komast hjá hverskyns smiti. Áður hefur verið fjallað um þetta mál hér á síðunni og ráðlegg ég þér að leita í eldri svörum. Gangi þér vel og eigðu ánægjulega meðgöngu.
Einnig viljum við benda á bæklingaröð Ljósmæðrafélags Íslands og greinarnar "Ljósmóðirin skrifar um", þar er að finna svör við mörgum af algengustu fyrirspurnunum.
Ljósmóðir mun leitast við að svara fyrirspurnum sem fyrst en athugið að það geta liðið allt að tvær vikur frá því að fyrirspurn er send inn og þar til svar er birt hér á vefnum. Svör við fyrirspurnum eru aðeins ætluð til fræðslu og upplýsingar en eiga á engan hátt að koma í stað faglegrar aðstoðar ljósmæðra, lækna eða annars fagfólks.
Því miður getum við ekki svarað öllum fyrirspurnum sem berast en leitumst fyrst og fremst við að svara fyrirspurnum um efni sem ekki hefur verið spurt um áður. Svör við fyrirspurnum birtast hér á síðunni ásamt fyrirspurninni sjálfri.