Ljósmóðir.is notar vafrakökur til að bæta notendaupplifun og stuðla að frekari þróun heimasíðunnar.
Upplýsingar um vafrakökur
22. ágúst 2015
Þannig er málið að ég og maðurinn minn stunduðum samfarir núna 2 vikum frá fóstureyðingu, ég fór í fóstureyðingu v. fósturgalla komin þá 21 viku við lentum í því að smokkurinn rifnaði. Ég ætlaði að kanna hvernig er með sýkingarhættu og þungunarhættu. Það var ekkert búið að blæða í 2 daga en svo alltí einu kom blæðing aftur frekar dökk daginn eftir samfarir. Hélt að mest öll úthreinsunin væri búin þar sem ekkert blæddi.
Komdu sæl, ég tel að þú þurfir ekki að hafa áhyggjur af þessu, hvorki þungunarhættu né sýkingarhættu. Það er ekki óalgengt að aftur fari aðeins að blæða þó að blæðing hafi verið nærri hætt. Hvað varðar þungunarhættu veit enginn alveg með vissu hvenær egglos verður en ólíkegt er að það sé strax tveimur vikum eftir fóstureyðingu. Gangi ykkur vel.
Einnig viljum við benda á bæklingaröð Ljósmæðrafélags Íslands og greinarnar "Ljósmóðirin skrifar um", þar er að finna svör við mörgum af algengustu fyrirspurnunum.
Ljósmóðir mun leitast við að svara fyrirspurnum sem fyrst en athugið að það geta liðið allt að tvær vikur frá því að fyrirspurn er send inn og þar til svar er birt hér á vefnum. Svör við fyrirspurnum eru aðeins ætluð til fræðslu og upplýsingar en eiga á engan hátt að koma í stað faglegrar aðstoðar ljósmæðra, lækna eða annars fagfólks.
Því miður getum við ekki svarað öllum fyrirspurnum sem berast en leitumst fyrst og fremst við að svara fyrirspurnum um efni sem ekki hefur verið spurt um áður. Svör við fyrirspurnum birtast hér á síðunni ásamt fyrirspurninni sjálfri.