Ljósmóðir.is notar vafrakökur til að bæta notendaupplifun og stuðla að frekari þróun heimasíðunnar.
Upplýsingar um vafrakökur
27. ágúst 2015
Sælar, Ég eignaðist mikinn fyrirbura og þurfti að pumpa mig þess vegna fyrstu tæplega 4 mánuðina. Ég rétt náði að prófa að setja hana á brjóst en svo var lítil mjólk, stress og umstang og svona svo ákváðum við í samráði við ljósmóður að gefa pela og nota meira þurrmjólk. Reglulega kemur upp mikil vanlíðan yfir þessari ákvörðun og langaði mig að fullvissa mig um að ég geti örugglega ekki látið reyna svona seint aftur á brjóstagjöfina, er það? Ætti ekki allt að vera orðið þurrt? Og smá auka spurning annars, við erum að prufa okkur áfram í pelunum, ef það smellur í gómnum (smelluhljóð frá barninu) er hún þá að gleypa óþarfa loft? Er of mikið eða lítið rennnsli eða bara að hleypa túttuna vitlaust? Með von um svör og kærar þakkir fyrir góðan vef :)
Heil og sæl og til hamingju með barnið. Þú hefur verið ansi dugleg ef þú hefur náð að pumpa þig í 4 mánuði. Það er mikið álag að eignast mikinn fyrirbura og oft erfitt að koma þeim á brjóstið þegar þau fara að braggast og eru orðin nógu gömul. Hvað varðar spurningu þína þá er möguleiki með nokkurri vinnu að ná upp mjólk aftur og ef til vill gefa í pela. Ég ráðlegg þér hinsvegar að auka ekki á streituna ef þér finnst það erfitt heldur að njóta barnsins og hlú vel að henni. Þó að brjóstagjöf sé vissulega af hinu góða þá eru aðstæður bara stundum þannig að ekki er hægt að koma því við og vissulega braggast börn ágætlega þó að þau fái þurrmjólk, fyrir nú utan það að þú ert búin að pumpa þig og gefa henni það. Þú finnur hvort hún gleypir of mikið loft - ef er mikill vindur í henni og hún þarf mikið að ropa eða ælir þá getur verið að eitthvað þurfi að huga að soginu en ef hún er lukkuleg þá þarftu ekki að hafa áhyggjur þó að einhver smelluhljóð heyrist. Gangi ykkur vel.
Einnig viljum við benda á bæklingaröð Ljósmæðrafélags Íslands og greinarnar "Ljósmóðirin skrifar um", þar er að finna svör við mörgum af algengustu fyrirspurnunum.
Ljósmóðir mun leitast við að svara fyrirspurnum sem fyrst en athugið að það geta liðið allt að tvær vikur frá því að fyrirspurn er send inn og þar til svar er birt hér á vefnum. Svör við fyrirspurnum eru aðeins ætluð til fræðslu og upplýsingar en eiga á engan hátt að koma í stað faglegrar aðstoðar ljósmæðra, lækna eða annars fagfólks.
Því miður getum við ekki svarað öllum fyrirspurnum sem berast en leitumst fyrst og fremst við að svara fyrirspurnum um efni sem ekki hefur verið spurt um áður. Svör við fyrirspurnum birtast hér á síðunni ásamt fyrirspurninni sjálfri.