Ljósmóðir.is notar vafrakökur til að bæta notendaupplifun og stuðla að frekari þróun heimasíðunnar.
Upplýsingar um vafrakökur
31. ágúst 2015
Gòðan daginn, ì dag byrjaði ég að fà frekar òþægilega verki ì naflann og ì kringum naflann. Það er vont að beygja sig og setjast niður. Er þetta eithvað til að hafa àhyggjur af ? Kv. Gunna
Komdu sæl, ég reikna með því að þú eigir von á barni en í bréfinu þínu kemur ekki fram hve langt á leið þú ert komin. Verkir í nafla eru nokkuð algengir á meðgöngu. Oftast er um "vaxtarverki" að ræða sem engin ástæða er að hafa áhyggjur af. Stundum lagast þetta þannig að líkaminn aðlagast toginu á vöðva og húð og verkir minnka en sumar konur finna fyrir þessu af og til alla meðgönguna. Þú þekkir líkamann þinn best og sjáðu til hvað úr þessu verður. Þú getur líka rætt málið við ljósmóðurina þína í meðgönguverndinni. Gangi þér vel.
Einnig viljum við benda á bæklingaröð Ljósmæðrafélags Íslands og greinarnar "Ljósmóðirin skrifar um", þar er að finna svör við mörgum af algengustu fyrirspurnunum.
Ljósmóðir mun leitast við að svara fyrirspurnum sem fyrst en athugið að það geta liðið allt að tvær vikur frá því að fyrirspurn er send inn og þar til svar er birt hér á vefnum. Svör við fyrirspurnum eru aðeins ætluð til fræðslu og upplýsingar en eiga á engan hátt að koma í stað faglegrar aðstoðar ljósmæðra, lækna eða annars fagfólks.
Því miður getum við ekki svarað öllum fyrirspurnum sem berast en leitumst fyrst og fremst við að svara fyrirspurnum um efni sem ekki hefur verið spurt um áður. Svör við fyrirspurnum birtast hér á síðunni ásamt fyrirspurninni sjálfri.