Ljósmóðir.is notar vafrakökur til að bæta notendaupplifun og stuðla að frekari þróun heimasíðunnar.
Upplýsingar um vafrakökur
06. október 2015
Halló fróðu konur. Nú spyr ég eins og fáfróð kona: afhverju er mælt með stoðmjólk samhliða brjóstagjöf? Sagt er að stoðmjólk sé ætluð börnum frá 6m-2ára. En ef barnið er á brjósti til 2ja ára og drekkur um 250-500ml á dag af brjóstamjólk? Einhver sagði mér þetta vera til að svara aukinni járnþörf barnsins. En dregur kalk ekki úr frásogi járns? Og er járnið í brjóstamjólk ekki auðuppteknara en úr kúamjólk? Hvað með ef barnið er á fjölbreyttu og járnríku fæði meðfram brjóstagjöfinni, er þá þörf á stoðmjólkinni? Kannski er lokaspurningin þessi: ef barn hefur verið eingöngu á brjósti til 6mán, síðan farið að borða fjölbreytt fæði og haldið áfram brjóstagjöf, er þá nauðsynlegt að bæta stoðmjólk í mataræði þess? Kær kveðja
Komdu sæl, ástæðan fyrir að mæla með stoðmjólk er að hún er járnbætt og börn hafa takmarkaðar járnbirgðir. Barni eldra en 6 mánaða sem er á brjósti þarf ekki endilega að gefa stoðmjólk. Foreldrar verða þó að hugsa út í það í mataræði barnsins að það fái nægjanlegt af járni. Ef barn hættir á brjósti um 6 mánaða aldurinn er ágætt að gefa stoðmjólk en það er ástæðulaust að fara að gefa mjólkina í pela ef barnið er farið að borða mat. Þá er gott að venja barnið á að drekka úr glasi og hóflega af mjólk. Rannsóknir hafa sýnt að járnbúskapur barna var betri við 12 mánaða eftir að stoðmjólkin kom til sögunnar en eins og þú bendir á þarf barn sem farið er að borða fjölbreytt fæði og foreldrar eru meðvitaðir um hugsanlegan járnskort ekki endilega að fá stoðmjólk. Í þessu eins og öllu öðru er best að nota almenna skynsemi. Gangi ykkur vel.
Einnig viljum við benda á bæklingaröð Ljósmæðrafélags Íslands og greinarnar "Ljósmóðirin skrifar um", þar er að finna svör við mörgum af algengustu fyrirspurnunum.
Ljósmóðir mun leitast við að svara fyrirspurnum sem fyrst en athugið að það geta liðið allt að tvær vikur frá því að fyrirspurn er send inn og þar til svar er birt hér á vefnum. Svör við fyrirspurnum eru aðeins ætluð til fræðslu og upplýsingar en eiga á engan hátt að koma í stað faglegrar aðstoðar ljósmæðra, lækna eða annars fagfólks.
Því miður getum við ekki svarað öllum fyrirspurnum sem berast en leitumst fyrst og fremst við að svara fyrirspurnum um efni sem ekki hefur verið spurt um áður. Svör við fyrirspurnum birtast hér á síðunni ásamt fyrirspurninni sjálfri.