Ljósmóðir.is notar vafrakökur til að bæta notendaupplifun og stuðla að frekari þróun heimasíðunnar.
Upplýsingar um vafrakökur
07. október 2015
Ég hætti á pillunni í byrjun júlí og fékk reglulegar blæðingar í júlí og ágúst. Þegar ég átti að byrja á túr aftur þann 7. september fékk ég túrverki og verki í bakið en blæðingar létu ekki sjá sig. Einnig fékk ég verki í rifbeinin og tók eftir hvítum flyksum í þvagi. Ég hef tekið nokkur þungunapróf sem eru neikvæð og tók síðasta prófið fyrir rúmum tveimur vikum síðan. Er þetta eðlilegt eftir pillustopp eða ætti ég að leita til læknis?
Heil og sæl, nei ég tel að þetta tengist alls ekkert pillustoppinu þínu. Það er allt í lagi að bíða aðeins og sjá hvort blæðingar láti ekki sjá sig, það getur alveg gerst að smá blæðingaóregla geri vart við sig einhverntímann og lagist svo af sjálfu sér. Ef þú ert hinsvegar með einhverja óútskýrða verki eða líður ekki vel ráðlegg ég þér að leita til læknis. Gangi þér vel.
Einnig viljum við benda á bæklingaröð Ljósmæðrafélags Íslands og greinarnar "Ljósmóðirin skrifar um", þar er að finna svör við mörgum af algengustu fyrirspurnunum.
Ljósmóðir mun leitast við að svara fyrirspurnum sem fyrst en athugið að það geta liðið allt að tvær vikur frá því að fyrirspurn er send inn og þar til svar er birt hér á vefnum. Svör við fyrirspurnum eru aðeins ætluð til fræðslu og upplýsingar en eiga á engan hátt að koma í stað faglegrar aðstoðar ljósmæðra, lækna eða annars fagfólks.
Því miður getum við ekki svarað öllum fyrirspurnum sem berast en leitumst fyrst og fremst við að svara fyrirspurnum um efni sem ekki hefur verið spurt um áður. Svör við fyrirspurnum birtast hér á síðunni ásamt fyrirspurninni sjálfri.