Ljósmóðir.is notar vafrakökur til að bæta notendaupplifun og stuðla að frekari þróun heimasíðunnar.
Upplýsingar um vafrakökur
19. nóvember 2015
Hæ hæ. Mig langaði svo mikið til að spyrja ykkur út í eitt. Það er þannig að ég nýlega búin að komast að því að ég sé ólétt, tók nokkrar óléttuprufur. fyrstu 4.nóv og allar með mjög skýrri línu. Samkvæmt fyrsta degi síðustu blæðinga sem var 21.sept taldi ég mig vera komna, eða ég átti að vera komin það langt (um 6.vikur) að ég gæti farið í snemmsónar og það myndi sjást eitthvað þar. Svo fer ég núna á mánudaginn og hann spyr mig þessara spurninga og hélt sjálfur að hann væri að fara að sjá miklu meira. En svo sjáum við ekki nema smá nestispoka og pííínupínu lítinn punkt sem seinna ætti kannski eftir að verða fóstur. Þá útskýrir hann fyrir mér að annaðhvort hefur þetta allt gerst aðeins seinna og ég því komin mun styttra en við héldum, bara 4v5daga þá, eða að það hefur ekki orðið neitt úr þessu, hann sagði mér að vera tilbúin fyrir því líka, en að við vonum auðvitað bara það besta og að ég sé bara komin það stutt og það sjáist næst. Hann gaf mér aftur tíma 10 dögum seinna og það er vika í að ég fari aftur núna. Þessi bið reynist mér mjög erfið og ég er mjög hrædd um það sem gæti mögulega gerst. Það hefur aldrei blætt hjá mér og ég hef aldrei fengið sára verki. Er eitthvað sem þið getið sagt til að róa mig? Eru meiri líkur á að þetta sé svokallað dulið fósturlát og að fóstrið eigi bara eftir að skila sér?
Heil og sæl, því miður get ég ekki með nokkru móti sagt til um hvort þetta er. Ég ráðlegg þér að undirbúa þig undir að þetta gæti verið þungun sem ekkert varð úr. Það er mjög algengt að svo fari. Mér þykir leitt að geta ekki sagt þér meira en í þessu tilfelli er það bara tíminn sem mun leiða í ljós hvort er, þú verður því að vera þolinmóð og bíða eftir tímanum hjá lækninum. Vonandi fer allt vel og gangi þér sem best.
Einnig viljum við benda á bæklingaröð Ljósmæðrafélags Íslands og greinarnar "Ljósmóðirin skrifar um", þar er að finna svör við mörgum af algengustu fyrirspurnunum.
Ljósmóðir mun leitast við að svara fyrirspurnum sem fyrst en athugið að það geta liðið allt að tvær vikur frá því að fyrirspurn er send inn og þar til svar er birt hér á vefnum. Svör við fyrirspurnum eru aðeins ætluð til fræðslu og upplýsingar en eiga á engan hátt að koma í stað faglegrar aðstoðar ljósmæðra, lækna eða annars fagfólks.
Því miður getum við ekki svarað öllum fyrirspurnum sem berast en leitumst fyrst og fremst við að svara fyrirspurnum um efni sem ekki hefur verið spurt um áður. Svör við fyrirspurnum birtast hér á síðunni ásamt fyrirspurninni sjálfri.