Sælar Ég á þriggja og hálfs mánaða strák sem hefur frá því hann hætti að sofna á brjósti (2 vikna) grátið sig í svefn. Það er misjafnt hversu lengi, allt frá 5mín og upp í 50mín! Hann grætur lítið sem ekkert allan daginn og er mjög hress og skemmtilegur. Ég get lagt hann í vagninn á daginn, ruggað honum, þá sofnar hann strax og sefur vel. Ég er alls ekki hörð við hann, hann má sofna hvar sem er.. í fanginu, í rúminu sínu, upp í hjónarúminu.. bara hvar sem! En það skiptir ekki máli hvað við gerum, hann tryllist alltaf og er óhuggandi þangað til hann lognast útaf. Ég hef oft velt fyrir mér hvort hann sé ekki nógu þreyttur, en það fer ekki á milli mála að hann sé þreyttur, svo er hann yfirleitt búinn að vera vakandi í 3-4 tíma þegar við förum með hann upp í rúm um kl 22. Ég hef líka velt fyrir mér hvort hann sé svangur, en núna gef ég honum pela fyrir svefninn, sem hann klárar mjög sjaldan svo það getur varla passað. Ég býð honum snuðið og hann tuffar því útúr sér, ég breiði vel yfir hann og hann sparkar sænginni af sér, ég sit hjá honum en það róar hann ekki, syng fyrir hann en hann gargar bara hærra, ég hef notað white noise en ekki dugað, Lulladoll hefur engin áhrif, tekið hann upp og huggað hann - hann hættir stundum í smá stund og svo heldur hann áfram að garga í fanginu, gengið með hann en hann hættir ekki, lagst með honum í okkar rúm en hann heldur bara áfram, leyft honum að vaka lengur en það endar alltaf eins.. svona gæti ég haldið endalaust áfram! Ég er buguð og langar að gráta með honum. Það er hrikalegt að þurfa hlusta á þetta á hverju kvöldi og vita ekki hvað er að. Eruð þið með einhverjar hugmyndir um hvað gæti verið að? Eða hvað ég gæti gert betur?
Heil og sæl, jú þetta er frekar leiðinlegt vandamál en ansi algengt samt. Þú getur verið viss um að ekkert er að honum því að hann er hress á daginn og ef hann væri með verki eða einhver óþægindi mundi hann líka vera með það á daginn. Þetta er líkast til orðinn einhver streituhringur hjá ykkur. Stundum þarf að breyta alveg til, jafnvel færa barnið í annað herbergi til að rjúfa hringinn. Það gæti verið gott að koma sér upp einhverri venju sem að þið gerið bara þegar hann er að fara sofa fyrir nóttina og reyna að hafa rólegt og afslappað andrúmsloft. Svo er gott að gera alltaf það sama, fara inn til hans ört ef hann grætur en láta hann vera, sussa bara rólega á hann - gefa honum snuð en ekki gefa honum jákvæða umbun eins og að taka hann upp, kveikja ljós, tala við hann, gefa honum að drekka o.s.frv. Bara að koma rólega inn til að hann verði ekki hræddur og finnist hann vera einn í heiminum. Svo er það þolinmæðin, ekki gefast upp - haltu þig við sömu rútínuna sem hentar ykkur og mundu að hann er glaður og kátur á daginn og ef þú tekur hann upp svo hann er ekki þjáður eða veikur. Annars er alltaf svolítið einstaklingsbundið hvað hentar hverri fjölskyldu, þú getur líka rætt þetta við ungbarnaverndina. Gangi ykkur vel.