Ljósmóðir.is notar vafrakökur til að bæta notendaupplifun og stuðla að frekari þróun heimasíðunnar.
Upplýsingar um vafrakökur
01. desember 2004
Sæl.
Ég veit að óléttar konur mega ekki borða hrá egg út af hættu á salmonellusýkingu en hvernig er það þá með jólaísinn sem er búin til úr hráum eggjum. Verðum við ekki að sleppa honum?
Sæl og takk fyrir að spyrja um þetta.
Að þessu sinni leituðum við ráða hjá Jóhönnu Eyrúnu Torfadóttur, matvæla- og næringarfræðing M.Sc. á matvælasviði Umhverfisstofnunar og hún sendi okkur eftirfarandi upplýsingar:
Barnshafandi konur ættu ekki að borða heimatilbúinn jólaís sem inniheldur til að mynda hráar eggjarauður. Hins vegar er hægt er að kaupa gerilsneyddar eggjahvítur og eggjarauður frá Nesbú sem tilvalið er að nota í staðinn (í jólaísinn eða t.d. í krem á kökur o.þ.h.) og þá er hætta á salmonellusýkingu ekki lengur fyrir hendi svo framarlega sem fyllsta hreinlætis sé gætt við matreiðslu og geymslu á ísnum. Það skal tekið fram að hreinlæti við matreiðslu er alltaf mikilvægt og á ávallt við þó svo að jólaísinn hafi verið sérstaklega tekinn fyrir í þessu svari.
Við þökkum Jóhönnu fyrir góðar upplýsingar.
Ég vona svo bara að jólaísinn smakkist jafn vel í ár!
Jólakveðjur, Anna Sigríður Vernharðsdóttir, hjúkrunarfræðingur og ljósmóðir.Yfirfarið í júní 2020
Einnig viljum við benda á bæklingaröð Ljósmæðrafélags Íslands og greinarnar "Ljósmóðirin skrifar um", þar er að finna svör við mörgum af algengustu fyrirspurnunum.
Ljósmóðir mun leitast við að svara fyrirspurnum sem fyrst en athugið að það geta liðið allt að tvær vikur frá því að fyrirspurn er send inn og þar til svar er birt hér á vefnum. Svör við fyrirspurnum eru aðeins ætluð til fræðslu og upplýsingar en eiga á engan hátt að koma í stað faglegrar aðstoðar ljósmæðra, lækna eða annars fagfólks.
Því miður getum við ekki svarað öllum fyrirspurnum sem berast en leitumst fyrst og fremst við að svara fyrirspurnum um efni sem ekki hefur verið spurt um áður. Svör við fyrirspurnum birtast hér á síðunni ásamt fyrirspurninni sjálfri.