Ljósmóðir.is notar vafrakökur til að bæta notendaupplifun og stuðla að frekari þróun heimasíðunnar.
Upplýsingar um vafrakökur
05. febrúar 2016
Góðan dag, og takk fyrir góða síðu. Um 11 vikum eftir að ég átti barnið mitt þá byrjaði ég að fá mikla, þykka og glæra útferð. Hún er lyktarlaus en er daglega (þarf að nota innlegg) og búin að vera það núna í 3-4 vikur. Ég fór í eftirskoðun ca. 8 vikum eftir fæðingu og þar leit allt ljómandi vel út. Mér finnst þetta vera eins útferð og þegar egglos verður. Ég er ekki byrjuð á blæðingum aftur eftir fæðinguna, en barnið er bara að hluta til á brjósti. Er þetta eitthvað sem ég ætti að láta kíkja á eða er þetta eðlilegt?
Heil og sæl, fyrst þetta er lyktarlaust og engir verkir mundi ég ráðleggja þér að sjá til og bíða og sjá hvað verður. Það er ekki ólíklegt að blæðingar fari að hefjast að nýju. Ef þetta heldur áfram lengi enn og/eða veldur óþægindum getur þú ráðfært þig við kvensjúkdómalækni. Gangi þér vel.
Einnig viljum við benda á bæklingaröð Ljósmæðrafélags Íslands og greinarnar "Ljósmóðirin skrifar um", þar er að finna svör við mörgum af algengustu fyrirspurnunum.
Ljósmóðir mun leitast við að svara fyrirspurnum sem fyrst en athugið að það geta liðið allt að tvær vikur frá því að fyrirspurn er send inn og þar til svar er birt hér á vefnum. Svör við fyrirspurnum eru aðeins ætluð til fræðslu og upplýsingar en eiga á engan hátt að koma í stað faglegrar aðstoðar ljósmæðra, lækna eða annars fagfólks.
Því miður getum við ekki svarað öllum fyrirspurnum sem berast en leitumst fyrst og fremst við að svara fyrirspurnum um efni sem ekki hefur verið spurt um áður. Svör við fyrirspurnum birtast hér á síðunni ásamt fyrirspurninni sjálfri.