Ljósmóðir.is notar vafrakökur til að bæta notendaupplifun og stuðla að frekari þróun heimasíðunnar.
Upplýsingar um vafrakökur
05. febrúar 2016
Ég er komin 28 vikur á leið og er búin að vera með turverki síðan í gærmorgun er það eðlilegt ekkert það slæmir verkir samt. Lenti líka í því fyrir jólin komin ca 22 vikur þá svo fóru þeir bara stòðu yfir í 2 daga þá.
Heil og sæl, það er erfitt að meta verki án þess að skoða þig og oft fá konur væga verki án þess að neitt sé að. Ég ráðlegg þér að hvíla þig og drekka vel og sjá til hvað úr þessu verður. Ef þú færð samdráttarverki verður þú að láta skoða þig. Gangi þér vel.
Einnig viljum við benda á bæklingaröð Ljósmæðrafélags Íslands og greinarnar "Ljósmóðirin skrifar um", þar er að finna svör við mörgum af algengustu fyrirspurnunum.
Ljósmóðir mun leitast við að svara fyrirspurnum sem fyrst en athugið að það geta liðið allt að tvær vikur frá því að fyrirspurn er send inn og þar til svar er birt hér á vefnum. Svör við fyrirspurnum eru aðeins ætluð til fræðslu og upplýsingar en eiga á engan hátt að koma í stað faglegrar aðstoðar ljósmæðra, lækna eða annars fagfólks.
Því miður getum við ekki svarað öllum fyrirspurnum sem berast en leitumst fyrst og fremst við að svara fyrirspurnum um efni sem ekki hefur verið spurt um áður. Svör við fyrirspurnum birtast hér á síðunni ásamt fyrirspurninni sjálfri.