Ljósmóðir.is notar vafrakökur til að bæta notendaupplifun og stuðla að frekari þróun heimasíðunnar.
Upplýsingar um vafrakökur
05. febrúar 2016
Er einhver löggjöf sem styður verðandi mæður í að minnka við sig vinnu fyrir settan dag? Eins og ég skil þetta, þá virðast konur að eiga geta unnið fram að fæðingu nema e-r fylgikvillar hrjái þær. Þá þurfa þær að panta tíma hjá lækni og bera sig aumar til að fá ávísuðu læknisvottorði.
Heil og sæl, þetta er rétt hjá þér að kerfið er svona. Það hefur komið til tals að rétt væri að reyna að breyta löggjöfinni á þann veg að konur geti hætt að vinna t.d. við 36 vikur eins og tíðkast sumsstaðar erlendis án þess að tími þeirra með barninu skerðist eða þær þufi að fá vottorð til þess. Því miður er þetta þó ekki orðið að veruleika hér.
Einnig viljum við benda á bæklingaröð Ljósmæðrafélags Íslands og greinarnar "Ljósmóðirin skrifar um", þar er að finna svör við mörgum af algengustu fyrirspurnunum.
Ljósmóðir mun leitast við að svara fyrirspurnum sem fyrst en athugið að það geta liðið allt að tvær vikur frá því að fyrirspurn er send inn og þar til svar er birt hér á vefnum. Svör við fyrirspurnum eru aðeins ætluð til fræðslu og upplýsingar en eiga á engan hátt að koma í stað faglegrar aðstoðar ljósmæðra, lækna eða annars fagfólks.
Því miður getum við ekki svarað öllum fyrirspurnum sem berast en leitumst fyrst og fremst við að svara fyrirspurnum um efni sem ekki hefur verið spurt um áður. Svör við fyrirspurnum birtast hér á síðunni ásamt fyrirspurninni sjálfri.