Ljósmóðir.is notar vafrakökur til að bæta notendaupplifun og stuðla að frekari þróun heimasíðunnar.
Upplýsingar um vafrakökur
06. febrúar 2016
Er komin 21 viku á leið og allt gengur mjög vel, allar mælingar úr sónum góðar. Byrjaði að finna fyrir hreyfingum á 18 viku, suma daganna er krílið alveg á fullu en stundum leggst það alveg til dvala en ég finn samt af og til smá spörk þegar ég leggst niður og hvíli mig. Er það alveg eðlilegt að vera með mismiklar hreyfingar s.s. annan daginn eru þær miklar og hinn ekki. Ef það er ekki að hreyfa sig mikið er þá merki um að fara slaka aðeins á? Vinn við mjög líkamlega erfiða vinnu
Heil og sæl, jú það er alveg eðlilegt að finna mismiklar hreyfingar milli daga. Það er ekki merki um að þú þurfir að gera minna þó að þú finnir minni hreyfingar en þú átt að finna hreyfingar samt á hverjum degi. Þegar barnið stækkar og verður svolítið öflugra ferðu að læra á þitt barn og þekkja hreyfingamunstur þess. Gangi þér vel.
Einnig viljum við benda á bæklingaröð Ljósmæðrafélags Íslands og greinarnar "Ljósmóðirin skrifar um", þar er að finna svör við mörgum af algengustu fyrirspurnunum.
Ljósmóðir mun leitast við að svara fyrirspurnum sem fyrst en athugið að það geta liðið allt að tvær vikur frá því að fyrirspurn er send inn og þar til svar er birt hér á vefnum. Svör við fyrirspurnum eru aðeins ætluð til fræðslu og upplýsingar en eiga á engan hátt að koma í stað faglegrar aðstoðar ljósmæðra, lækna eða annars fagfólks.
Því miður getum við ekki svarað öllum fyrirspurnum sem berast en leitumst fyrst og fremst við að svara fyrirspurnum um efni sem ekki hefur verið spurt um áður. Svör við fyrirspurnum birtast hér á síðunni ásamt fyrirspurninni sjálfri.