Ljósmóðir.is notar vafrakökur til að bæta notendaupplifun og stuðla að frekari þróun heimasíðunnar.
Upplýsingar um vafrakökur
12. febrúar 2016
sælar Ég er að velta fyrir mér hvort að það sé garenterað að kona fái alltaf blæðingar eftir egglos? Ég fór til kvennsa og fékk staðfest egglos og nú kemur engin "alvöru" rósa en ég fékk bleika útferð í 6-7skipti (ca 1/2tsk) en ekkert sem benti til tíðablæðinga finst mér Tók óléttupróf sem kom neikvætt en á síðustu meðgöngu fékk ég aldrei jákvætt próf svo ég er í frekar óþægilegri stöðu Get ég staðfest óléttu víst rósa er ekki komin tæpum 3v eftir egglos ef ekki hvað getur þetta þá verið? Takk fyrir mig :)
Heil og sæl, ég ráðlegg þér að sjá til í nokkra daga og ef engar blæðingar gera vart við sig að endurtaka þá þungunarpróf. Ef það er neikvætt hefur frjóvgun líkast til ekki orðið að þessu sinni. Ef ennþá koma engar blæðingar eftir það getur verið gott að ráðfæra sig við kvensjúkdómalækni. Gangi þér vel.
Einnig viljum við benda á bæklingaröð Ljósmæðrafélags Íslands og greinarnar "Ljósmóðirin skrifar um", þar er að finna svör við mörgum af algengustu fyrirspurnunum.
Ljósmóðir mun leitast við að svara fyrirspurnum sem fyrst en athugið að það geta liðið allt að tvær vikur frá því að fyrirspurn er send inn og þar til svar er birt hér á vefnum. Svör við fyrirspurnum eru aðeins ætluð til fræðslu og upplýsingar en eiga á engan hátt að koma í stað faglegrar aðstoðar ljósmæðra, lækna eða annars fagfólks.
Því miður getum við ekki svarað öllum fyrirspurnum sem berast en leitumst fyrst og fremst við að svara fyrirspurnum um efni sem ekki hefur verið spurt um áður. Svör við fyrirspurnum birtast hér á síðunni ásamt fyrirspurninni sjálfri.