Ljósmóðir.is notar vafrakökur til að bæta notendaupplifun og stuðla að frekari þróun heimasíðunnar.
Upplýsingar um vafrakökur
28. apríl 2016
Sælar og takk fyrir frábæran vef. Ég er með eina þriggja vikna og hef smá spurningu varðandi kippi sem hún fær. Hún sýnir moro-viðbrögð stundum en ég er ekki að rugla þessu saman. Þetta er aðallega þegar hún er lögð í vagninn en þá liggur hún oft með hendurnar uppréttar við höfuðið, hendurnar kippast þá oft létt til, ekki miklir kippir heldur bara voða litlir og rólegir og hún virðist ekkert verða þess vör, en hún er svo sem alltaf sofandi þegar þeir koma en þegar þeir byrja þá finnst mér koma svo mikið af þeim og nokkuð reglulega í stuttan tíma. Okkur var sagt í foreldrafræðslu að kippir væru alveg eðlilegir og þá mikið talað um þessi moro-viðbrögð, er ekki að átta mig á því hvort talað var um svona kippi líka. Getið þið frætt mig aðeins um þetta? Er einhver ástæða til að leita til læknis? Fyrirfram þakkir!
Heil og sæl, jú það er rétt að kippir eru mjög algengir hjá ungbörnum og oftast nær alveg eðlilegir. Mér heyrist á lýsingu þinni að þetta séu meinlausir kippir en ég get ekki með nokkru móti metið það alveg með vissu svona bréfleiðis. Ég ráðlegg þér því að ræða þetta við ungbarnaverndina. Gangi þér vel.
Einnig viljum við benda á bæklingaröð Ljósmæðrafélags Íslands og greinarnar "Ljósmóðirin skrifar um", þar er að finna svör við mörgum af algengustu fyrirspurnunum.
Ljósmóðir mun leitast við að svara fyrirspurnum sem fyrst en athugið að það geta liðið allt að tvær vikur frá því að fyrirspurn er send inn og þar til svar er birt hér á vefnum. Svör við fyrirspurnum eru aðeins ætluð til fræðslu og upplýsingar en eiga á engan hátt að koma í stað faglegrar aðstoðar ljósmæðra, lækna eða annars fagfólks.
Því miður getum við ekki svarað öllum fyrirspurnum sem berast en leitumst fyrst og fremst við að svara fyrirspurnum um efni sem ekki hefur verið spurt um áður. Svör við fyrirspurnum birtast hér á síðunni ásamt fyrirspurninni sjálfri.