Ljósmóðir.is notar vafrakökur til að bæta notendaupplifun og stuðla að frekari þróun heimasíðunnar.
Upplýsingar um vafrakökur
19. maí 2016
Góðan daginn og takk fyrir frábæran vef. Núna veit ég ekki alveg hvort að þetta sé réttur vettvangur fyrir þessa fyrirspurn en ég læt á það reyna! Ég er með einn 6 vikna og u.þ.b. 10 dögum eftir fæðingu fór að blæða úr endaþarmi hjá mér þegar ég hafði hægðir þó að þær væru mjúkar. Ég talaði við ljósmóðurina í heimavitjuninni og hún hélt að ég væri líklegast með gyllinæð og sagði að ef þetta væri ekkert að trufla mig eða valda mér sársauka þyrfti ekkert að gera í þessu. Þetta hélt áfram í svolítinn tíma og fór að verða svolítið vont á meðan ég hafði hægðir. Ég tek það fram að ég var aldrei með neitt út úr endaþarminum og geri þá ráð fyrir því að þetta hafi verið innri gyllinæð. Núna er þetta hætt en seinustu 2 vikur ca hef ég verið með mikinn kláða í og við endaþarminn. Hvaða krem/stíla er mér óhætt að nota með brjóstagjöf og ef ég fer til læknis, hvernig læknis á ég að fara til? Kærar þakkir!
Heil og sæl, þú þarft að útiloka að þú getir verið með njálg. Þegar upp kemur mikill kláði við endaþarm er best að útiloka það. Ef enginn njálgur er skaltu prófa að nota þunnt lag af feitu kremi og bera það á x2 á dag. Ef þú skánar ekki á 1-2 dögum (þú verður líklega ekki alveg góð en átt að verða skárri) ráðlegg ég þér að tala við heimilislækninn þinn. Það er erfitt að ráðleggja eitthvað af viti án þess að skoða þetta. Gangi þér vel.
Einnig viljum við benda á bæklingaröð Ljósmæðrafélags Íslands og greinarnar "Ljósmóðirin skrifar um", þar er að finna svör við mörgum af algengustu fyrirspurnunum.
Ljósmóðir mun leitast við að svara fyrirspurnum sem fyrst en athugið að það geta liðið allt að tvær vikur frá því að fyrirspurn er send inn og þar til svar er birt hér á vefnum. Svör við fyrirspurnum eru aðeins ætluð til fræðslu og upplýsingar en eiga á engan hátt að koma í stað faglegrar aðstoðar ljósmæðra, lækna eða annars fagfólks.
Því miður getum við ekki svarað öllum fyrirspurnum sem berast en leitumst fyrst og fremst við að svara fyrirspurnum um efni sem ekki hefur verið spurt um áður. Svör við fyrirspurnum birtast hér á síðunni ásamt fyrirspurninni sjálfri.