Ljósmóðir.is notar vafrakökur til að bæta notendaupplifun og stuðla að frekari þróun heimasíðunnar.
Upplýsingar um vafrakökur
19. maí 2016
Sæl vertu Barnið mitt er 7 vikna gamalt og þurfti að byrja á bakflæðilyfi fyrir um 3 vikum síðan. Svo fór ég að taka eftir því um daginn að það er oft gríðarlegt slím í hálsinum á honum og hann er að japla á því og oft lekur það útúr honum. Stundum er þetta fast i hálsinum á honum og honum svelgist á og það hálf partinn stendur í honum. Hvers vegna myndast svona slím? Getur svona slímmyndun bent til óþols, eins og t.d. mjólkuróþols?
Heil og sæl, ég get því miður ekki svarað þér án þess að skoða barnið. Eins og þú lýsir þessu finnst mér þetta það mikiðl einkenni að ég ráðlegg þér að bera þetta undir lækni. Gangi þér vel.
Einnig viljum við benda á bæklingaröð Ljósmæðrafélags Íslands og greinarnar "Ljósmóðirin skrifar um", þar er að finna svör við mörgum af algengustu fyrirspurnunum.
Ljósmóðir mun leitast við að svara fyrirspurnum sem fyrst en athugið að það geta liðið allt að tvær vikur frá því að fyrirspurn er send inn og þar til svar er birt hér á vefnum. Svör við fyrirspurnum eru aðeins ætluð til fræðslu og upplýsingar en eiga á engan hátt að koma í stað faglegrar aðstoðar ljósmæðra, lækna eða annars fagfólks.
Því miður getum við ekki svarað öllum fyrirspurnum sem berast en leitumst fyrst og fremst við að svara fyrirspurnum um efni sem ekki hefur verið spurt um áður. Svör við fyrirspurnum birtast hér á síðunni ásamt fyrirspurninni sjálfri.