Ljósmóðir.is notar vafrakökur til að bæta notendaupplifun og stuðla að frekari þróun heimasíðunnar.
Upplýsingar um vafrakökur
21. maí 2016
Sæl Takk fyrir flottan vef. Ég er með eina spurningu sem varðar þyngdaraukningu í lok meðgöngu. Er eðlilegt að þyngdin standi í stað seinustu vikurnar? Ég var í kjörþyngd í upphafi meðgöngu og hef þyngst jafnt og þétt. Er komin 40 vikur núna og þyngdin hefur staðið í stað frá viku 38. Þarf ég einhverjar áhyggjur að hafa af þessu?
Heil og sæl, nei þú þarft ekki að hafa áhyggjur af þessu. Það er algengt að þyngd standi í stað í lokin þar sem konur finna oft fyrir lystarleysi og borða minna í lok meðgöngunnar. Gangi þér vel.
Einnig viljum við benda á bæklingaröð Ljósmæðrafélags Íslands og greinarnar "Ljósmóðirin skrifar um", þar er að finna svör við mörgum af algengustu fyrirspurnunum.
Ljósmóðir mun leitast við að svara fyrirspurnum sem fyrst en athugið að það geta liðið allt að tvær vikur frá því að fyrirspurn er send inn og þar til svar er birt hér á vefnum. Svör við fyrirspurnum eru aðeins ætluð til fræðslu og upplýsingar en eiga á engan hátt að koma í stað faglegrar aðstoðar ljósmæðra, lækna eða annars fagfólks.
Því miður getum við ekki svarað öllum fyrirspurnum sem berast en leitumst fyrst og fremst við að svara fyrirspurnum um efni sem ekki hefur verið spurt um áður. Svör við fyrirspurnum birtast hér á síðunni ásamt fyrirspurninni sjálfri.