Ljósmóðir.is notar vafrakökur til að bæta notendaupplifun og stuðla að frekari þróun heimasíðunnar.
Upplýsingar um vafrakökur
14. maí 2021
Hæhæ, ég átti dóttur mína fyrir 7 mánuðum og það þurfti að sauma en allt gréri vel. En núna er þar sem ég var saumuð er bólgið og ég er með verki í náranum, ég var líka með 39.1 stiga hita áðan en hann er orðin venjulegur núna. Ég hef oft sofið hjá manninum mínum eftir fæðingu og þetta hefur aldrei gerst nema þetta skipti ( vaknaði svona daginn eftir). Hefur þú hugmynd afhverju þetta er að gerast? Mér svíður smá í bólgna partin en ekki vont að pissa...
Sæl
Þar sem það er langt síðan þú áttir og rifan hefur gróið vel og ekki verið til vandræða hingað til, þá þykir mér ólíklegt að þetta tengist rifunni. Hinsvegar er alltaf möguleiki að fá sýkingu á þetta svæði og ef þettta er mikið bólgið og ekki að lagast, verkir og hiti á svæðinu er vissara að láta lækni kíkja á það.
Gangi þér vel,
Bestu kveðjur, Jóhanna María Friðriksdóttir, ljósmóðir
Einnig viljum við benda á bæklingaröð Ljósmæðrafélags Íslands og greinarnar "Ljósmóðirin skrifar um", þar er að finna svör við mörgum af algengustu fyrirspurnunum.
Ljósmóðir mun leitast við að svara fyrirspurnum sem fyrst en athugið að það geta liðið allt að tvær vikur frá því að fyrirspurn er send inn og þar til svar er birt hér á vefnum. Svör við fyrirspurnum eru aðeins ætluð til fræðslu og upplýsingar en eiga á engan hátt að koma í stað faglegrar aðstoðar ljósmæðra, lækna eða annars fagfólks.
Því miður getum við ekki svarað öllum fyrirspurnum sem berast en leitumst fyrst og fremst við að svara fyrirspurnum um efni sem ekki hefur verið spurt um áður. Svör við fyrirspurnum birtast hér á síðunni ásamt fyrirspurninni sjálfri.