Ljósmóðir.is notar vafrakökur til að bæta notendaupplifun og stuðla að frekari þróun heimasíðunnar.
Upplýsingar um vafrakökur
01. júní 2021
Góðan dag Ég er komin 33 vikur á leið og byrjaði fyrir skömmu að finna fyrir miklu hiksta, nokkuð oft á dag hjá barninu og einnig auknum fósturhreyfingum. Er aukinn hiksti algengur og eðlilegur á þessum tíma? Og eru auknar hreyfingar áhyggjuefni?
Sæl
Það er alveg eðlilegt að barnið hiksti nokkrum sinnum á dag. Þetta er mjög misjafnt, en sumar konur finna lítið fyrir þessu á meðan aðrar finna mikið og oft fyrir þessu.
Góðar fósturhreyfingar eru merki um það að barninu líði vel. Þú þarft ekki að hafa áhyggjur af því að barnið hreyfi sig of mikið, en þetta er einnig mjög misjafnt á milli kvenna og barna.
Gangi þér vel.
Kær kveðja, Jóhanna María Friðriksdóttir, ljósmóðir
Einnig viljum við benda á bæklingaröð Ljósmæðrafélags Íslands og greinarnar "Ljósmóðirin skrifar um", þar er að finna svör við mörgum af algengustu fyrirspurnunum.
Ljósmóðir mun leitast við að svara fyrirspurnum sem fyrst en athugið að það geta liðið allt að tvær vikur frá því að fyrirspurn er send inn og þar til svar er birt hér á vefnum. Svör við fyrirspurnum eru aðeins ætluð til fræðslu og upplýsingar en eiga á engan hátt að koma í stað faglegrar aðstoðar ljósmæðra, lækna eða annars fagfólks.
Því miður getum við ekki svarað öllum fyrirspurnum sem berast en leitumst fyrst og fremst við að svara fyrirspurnum um efni sem ekki hefur verið spurt um áður. Svör við fyrirspurnum birtast hér á síðunni ásamt fyrirspurninni sjálfri.