Ljósmóðir.is notar vafrakökur til að bæta notendaupplifun og stuðla að frekari þróun heimasíðunnar.
Upplýsingar um vafrakökur
12. júlí 2021
Ég eignaðist barnið mitt fyrir rétt undir 8 vikum og byrjaði á brjóstapilluni fyrir 4 vikum og núna var ég að taka eftir því að það er að koma smá bleikt blóð í pappírinn og eg er búin að vera fá verki sem virka eina og krampar og túrverkir. Eru þetta milliblæðingar eða er möguleiki að ég sé að byrja á blæðingum?
Sæl, þetta lýsir sér eins og milliblæðingar, sem er þekkt aukaverkun brjóstapillunar. Þú átt ekki að fara á blæðingar þegar þú ert á brjóstapillunni.
Kær kveðja, Hafdís Guðnadóttir, ljósmóðir.
Einnig viljum við benda á bæklingaröð Ljósmæðrafélags Íslands og greinarnar "Ljósmóðirin skrifar um", þar er að finna svör við mörgum af algengustu fyrirspurnunum.
Ljósmóðir mun leitast við að svara fyrirspurnum sem fyrst en athugið að það geta liðið allt að tvær vikur frá því að fyrirspurn er send inn og þar til svar er birt hér á vefnum. Svör við fyrirspurnum eru aðeins ætluð til fræðslu og upplýsingar en eiga á engan hátt að koma í stað faglegrar aðstoðar ljósmæðra, lækna eða annars fagfólks.
Því miður getum við ekki svarað öllum fyrirspurnum sem berast en leitumst fyrst og fremst við að svara fyrirspurnum um efni sem ekki hefur verið spurt um áður. Svör við fyrirspurnum birtast hér á síðunni ásamt fyrirspurninni sjálfri.