Spurt og svarað

23. september 2021

Útferð

Ég er komin 34v á leið og hef verið með nokkuð mikla útferð alla meðgönguna. Held að eh af útferðinni kemur ekki úr leggöngunum heldur mögulega þvagrásinni og byrjaði strax eða stuttu eftir að ég varð ólétt. Passar það? Ef svo er, er það eðlilegt?

Sæl, mikil útferð er eðlileg á meðgöngu, sem og þvagleki, vegna mikils álags á grindarbotninn. Sé um þvagleka að ræða ráðlegg ég þér að gera grindarbotnsæfingar daglega. Haldi hann áfram eftir fæðingu ráðlegg ég þér að leita til sjúkraþjálfara sem sérhæfir sig í grindarbotni.

Kveðja, Hafdís Guðnadóttir, ljósmóðir.

Senda fyrirspurn
Allir reitir verða að vera fylltir útSenda
Fyrirspurnin þín hefur verið send.
Fannstu ekki svar?

Einnig viljum við benda á bæklingaröð Ljósmæðrafélags Íslands og greinarnar "Ljósmóðirin skrifar um", þar er að finna svör við mörgum af algengustu fyrirspurnunum.

Ljósmóðir mun leitast við að svara fyrirspurnum sem fyrst en athugið að það geta liðið allt að tvær vikur frá því að fyrirspurn er send inn og þar til svar er birt hér á vefnum. Svör við fyrirspurnum eru aðeins ætluð til fræðslu og upplýsingar en eiga á engan hátt að koma í stað faglegrar aðstoðar ljósmæðra, lækna eða annars fagfólks.

Því miður getum við ekki svarað öllum fyrirspurnum sem berast en leitumst fyrst og fremst við að svara fyrirspurnum um efni sem ekki hefur verið spurt um áður. Svör við fyrirspurnum birtast hér á síðunni ásamt fyrirspurninni sjálfri.