Ljósmóðir.is notar vafrakökur til að bæta notendaupplifun og stuðla að frekari þróun heimasíðunnar.
Upplýsingar um vafrakökur
24. september 2021
Góðan dag, Ég á 2,5 mánaða barn og hef fundið fyrir mikilli þörf á nikótínneyslu á brjóstagjöf. Hef náð að halda aftur af mér fram til núna en finnst það nú orðið mjög erfitt og ómögulegt. Barnið sefur í um 6-7 tíma samfellt á næturnar orðið, er það skaðlegt fyrir barnið ef ég myndi fá mér eitt lyft eða neyta einhverskonar nikótíni eftir síðustu gjöf barnsins fyrir nætursvefninn? Hvað tekur það langan tíma fyrir nikótín að hverfa alveg úr brjóstamjólkinni, og hvaða magn notkunar á nikótíni er verið að miða við? Vil þakka ykkur fyrir að halda uppi þessum vefi, hefur gert mikið fyrir okkur að geta leitað til hans bæði á meðgöngu og eftir. Með bestu kveðju
Sæl, helmingunartími nikótíns er um 2 klst, svo að 2 klst eftir að þú fékkst þér púðann hefur styrkurinn í blóði minnkað um helming, 4 klst síðar hefur styrkurinn aftur minnkað um helming og svo framvegis. Magn nikótíns skiptir því miklu máli uppá hversu langan tíma það tekur líkamann að losa sig við það. Nikótín er brotið niður í cotinin, sem hefur hins vegar lengri helmingunartíma, eða 18-20 klst.
Kveðja, Hafdís Guðnadóttir, ljósmóðir.
Einnig viljum við benda á bæklingaröð Ljósmæðrafélags Íslands og greinarnar "Ljósmóðirin skrifar um", þar er að finna svör við mörgum af algengustu fyrirspurnunum.
Ljósmóðir mun leitast við að svara fyrirspurnum sem fyrst en athugið að það geta liðið allt að tvær vikur frá því að fyrirspurn er send inn og þar til svar er birt hér á vefnum. Svör við fyrirspurnum eru aðeins ætluð til fræðslu og upplýsingar en eiga á engan hátt að koma í stað faglegrar aðstoðar ljósmæðra, lækna eða annars fagfólks.
Því miður getum við ekki svarað öllum fyrirspurnum sem berast en leitumst fyrst og fremst við að svara fyrirspurnum um efni sem ekki hefur verið spurt um áður. Svör við fyrirspurnum birtast hér á síðunni ásamt fyrirspurninni sjálfri.