Spurt og svarað

17. nóvember 2021

Örvunarbólusetning

Hæhæ, ég er komin 19 vikur á leið, eru þið að mæla með covid örvunarbólusetningu eða ætti að bíða þangað til eftir að meðgöngu lýkur?

Góðan daginn, takk fyrir fyrirspurnina. 

Það er í raun byggt á því sama og þegar mælt var með grunnbólusetningu áður. Það hefur ekkert komið fram um að þessi þriðji skammtur sé varhugaverðari en fyrstu tveir. Það þurfa að vera 12 vikur liðnar frá grunnbólusetningu. Hér á landi hefur verið ráðlagt að bólusetja á seinni tveimur þriðjungum meðgöngu. Þú gætir rætt við ljósmóður í meðgönguvernd fyrir frekari upplýsingar.

Gangi þér vel. 

Kær kveðja, Elfa Lind Einarsdóttir, ljósmóðir

Senda fyrirspurn
Allir reitir verða að vera fylltir útSenda
Fyrirspurnin þín hefur verið send.
Fannstu ekki svar?

Einnig viljum við benda á bæklingaröð Ljósmæðrafélags Íslands og greinarnar "Ljósmóðirin skrifar um", þar er að finna svör við mörgum af algengustu fyrirspurnunum.

Ljósmóðir mun leitast við að svara fyrirspurnum sem fyrst en athugið að það geta liðið allt að tvær vikur frá því að fyrirspurn er send inn og þar til svar er birt hér á vefnum. Svör við fyrirspurnum eru aðeins ætluð til fræðslu og upplýsingar en eiga á engan hátt að koma í stað faglegrar aðstoðar ljósmæðra, lækna eða annars fagfólks.

Því miður getum við ekki svarað öllum fyrirspurnum sem berast en leitumst fyrst og fremst við að svara fyrirspurnum um efni sem ekki hefur verið spurt um áður. Svör við fyrirspurnum birtast hér á síðunni ásamt fyrirspurninni sjálfri.