Ljósmóðir.is notar vafrakökur til að bæta notendaupplifun og stuðla að frekari þróun heimasíðunnar.
Upplýsingar um vafrakökur
05. janúar 2022
Hæ, ef ég fæ mér nikótín púða en neyðist til að pumpa strax eftir það, þarf ég þá að henda mjólkinni eða get ég gefið hana seinna? Hversu langur tími þarf að lyða? Væri gott að vita allt svona þar sem upplýsingar á netinu eru villandi
Sæl og takk fyrir fyrirspurnina,
Ekki er mælt með notkun nikótín púða við brjóstagjöf og því best að sleppa ef mögulegt er. Ef það er ekki mögulegt er mælt með að gefa fyrst brjóst eða pumpa brjóstamjólk og síðan nota nikotín.
Styrkur nikótíns er mestur fyrstu 1,5- 2klst í brjóstamjólk eftir notkun snus skv. sænskri rannsókn hér.
Gangi þér vel,
Bestu kveðjur, Elfa Lind Einarsdóttir, ljósmóðir.
Einnig viljum við benda á bæklingaröð Ljósmæðrafélags Íslands og greinarnar "Ljósmóðirin skrifar um", þar er að finna svör við mörgum af algengustu fyrirspurnunum.
Ljósmóðir mun leitast við að svara fyrirspurnum sem fyrst en athugið að það geta liðið allt að tvær vikur frá því að fyrirspurn er send inn og þar til svar er birt hér á vefnum. Svör við fyrirspurnum eru aðeins ætluð til fræðslu og upplýsingar en eiga á engan hátt að koma í stað faglegrar aðstoðar ljósmæðra, lækna eða annars fagfólks.
Því miður getum við ekki svarað öllum fyrirspurnum sem berast en leitumst fyrst og fremst við að svara fyrirspurnum um efni sem ekki hefur verið spurt um áður. Svör við fyrirspurnum birtast hér á síðunni ásamt fyrirspurninni sjálfri.