Ljósmóðir.is notar vafrakökur til að bæta notendaupplifun og stuðla að frekari þróun heimasíðunnar.
Upplýsingar um vafrakökur
16. maí 2022
hæhæ það er alltaf talað um að laukur fari illa í ungabörn þegar maður er með þau á brjósti og maður eigi að lágmarka laukinn eins og hægt er, hvenær hættir maður að þurfa að pæla í því þannig barnið fái ekki í magann.
Góðan daginn og takk fyrir fyrirspurnina,
Það er mismunandi hvað börn eru viðkvæm fyrir. Yfirleitt er ekki talið að það hafi mikil áhrif hvað móðirin borðar, nema að sjálfsögu ef barnið sé með ofnæmi/óþol (t.d. fyrir mjólk eða öðru). Það þurfa ekki allar mæður að lágmarka lauk við brjóstagjöf en í sumum aðstæðum virðist það minnka óværð eða magaverki barna.
Ef barnið var viðkvæmt fyrir því fyrstu mánuðina er hægt að prófa sig áfram.
Gangi þér vel.
Bestu kveðjur, Elfa Lind Einarsdóttir, ljósmóðir.
Einnig viljum við benda á bæklingaröð Ljósmæðrafélags Íslands og greinarnar "Ljósmóðirin skrifar um", þar er að finna svör við mörgum af algengustu fyrirspurnunum.
Ljósmóðir mun leitast við að svara fyrirspurnum sem fyrst en athugið að það geta liðið allt að tvær vikur frá því að fyrirspurn er send inn og þar til svar er birt hér á vefnum. Svör við fyrirspurnum eru aðeins ætluð til fræðslu og upplýsingar en eiga á engan hátt að koma í stað faglegrar aðstoðar ljósmæðra, lækna eða annars fagfólks.
Því miður getum við ekki svarað öllum fyrirspurnum sem berast en leitumst fyrst og fremst við að svara fyrirspurnum um efni sem ekki hefur verið spurt um áður. Svör við fyrirspurnum birtast hér á síðunni ásamt fyrirspurninni sjálfri.