Ljósmóðir.is notar vafrakökur til að bæta notendaupplifun og stuðla að frekari þróun heimasíðunnar.
Upplýsingar um vafrakökur
07. nóvember 2022
Mig langaði til þess að athuga hvort infra-rauðir geislar geti haft einhver skaðleg áhrif á fóstur? Tek æfingar reglulega í heitum sölum sem hitaðir eru upp með infra-rauðum geislum og passa að ofkeyra mig ekki og drekk vel af vatni og söltum.
Sæl og takk fyrir fyrirspurnina.
Það er í lagi að æfa í infa rauðum sölum á meðgöngu. Hins vegar líkt og þú nefnir er mikilvægt að vera vel meðvitaður um eigin líðan á meðan á æfingu stendur. Gott er að hafa með sér vatnsbrúsa og miða við að geta viðhaldið léttum samræðum á meðan æfingunni stendur. Gangi þér vel.
Bestu kveðjur, Ilmur Björg Einarsdóttir, ljósmóðir.
Einnig viljum við benda á bæklingaröð Ljósmæðrafélags Íslands og greinarnar "Ljósmóðirin skrifar um", þar er að finna svör við mörgum af algengustu fyrirspurnunum.
Ljósmóðir mun leitast við að svara fyrirspurnum sem fyrst en athugið að það geta liðið allt að tvær vikur frá því að fyrirspurn er send inn og þar til svar er birt hér á vefnum. Svör við fyrirspurnum eru aðeins ætluð til fræðslu og upplýsingar en eiga á engan hátt að koma í stað faglegrar aðstoðar ljósmæðra, lækna eða annars fagfólks.
Því miður getum við ekki svarað öllum fyrirspurnum sem berast en leitumst fyrst og fremst við að svara fyrirspurnum um efni sem ekki hefur verið spurt um áður. Svör við fyrirspurnum birtast hér á síðunni ásamt fyrirspurninni sjálfri.