Ljósmóðir.is notar vafrakökur til að bæta notendaupplifun og stuðla að frekari þróun heimasíðunnar.
Upplýsingar um vafrakökur
13. desember 2022
Góðan dag, var að velta fyrir mér hvað gæti verið að valda þvi að ég er með nokkrar rauðar bólur á öðru brjóstinu sem er pínu aumar viðkomu er búin að vera smá aum i brjostunum baðum en þessar bolur eru bara á öðru, var a blæðingum fyrir 2 vikum getur þetta verið hormonatengt eða þarf eg að hafa ahyggjur ?
Góðan dag og takk fyrir fyrirspurnina,
Ef þetta eru litlar bólur þá er líklegt að þær séu vegna olíu í húðinni eða öðru sem hefur verið að angra húðina á þessum stað. Erfitt er að segja til um hvað sé að valda þessu án þess að sjá bólurnar eða vita meira. Ég ráðlegg þér að fylgjast með og hafa samband við þína heilsugæslu ef þær aukast eða eymslin aukast. Gangi þér vel.
Bestu kveður, Elfa Lind Einarsdóttir, ljósmóðir.
Einnig viljum við benda á bæklingaröð Ljósmæðrafélags Íslands og greinarnar "Ljósmóðirin skrifar um", þar er að finna svör við mörgum af algengustu fyrirspurnunum.
Ljósmóðir mun leitast við að svara fyrirspurnum sem fyrst en athugið að það geta liðið allt að tvær vikur frá því að fyrirspurn er send inn og þar til svar er birt hér á vefnum. Svör við fyrirspurnum eru aðeins ætluð til fræðslu og upplýsingar en eiga á engan hátt að koma í stað faglegrar aðstoðar ljósmæðra, lækna eða annars fagfólks.
Því miður getum við ekki svarað öllum fyrirspurnum sem berast en leitumst fyrst og fremst við að svara fyrirspurnum um efni sem ekki hefur verið spurt um áður. Svör við fyrirspurnum birtast hér á síðunni ásamt fyrirspurninni sjálfri.