Ljósmóðir.is notar vafrakökur til að bæta notendaupplifun og stuðla að frekari þróun heimasíðunnar.
Upplýsingar um vafrakökur
07. febrúar 2023
Hæhæ Er eðlilegt að einkenni meðgöngu minnki. Er komin c.a. 7 vikur og hef ekki fengið "turverki" í tvo daga eða svo og lítið um brjóstaspennu. Finn þo fyrir smá lystarleysi er orðin frekar óörugg.
Góðan dag og takk fyrir fyrirspurnina,
Meðgöngu einkenni geta verið mismunandi eftir vikum og dögum. Því getur það alveg verið eðlilegt. Túrverkir geta alveg verið meiri til að byrja með þegar legið er að stækka. Ég ráðlegg þér að hafa samband við ljósmóðir í meðgönguvernd Heilsugæslu ef þú hefur frekari áhyggjur. Gangi þér vel.
Bestu kveðjur, Elfa Lind Einarsdóttir, ljósmóðir.
Einnig viljum við benda á bæklingaröð Ljósmæðrafélags Íslands og greinarnar "Ljósmóðirin skrifar um", þar er að finna svör við mörgum af algengustu fyrirspurnunum.
Ljósmóðir mun leitast við að svara fyrirspurnum sem fyrst en athugið að það geta liðið allt að tvær vikur frá því að fyrirspurn er send inn og þar til svar er birt hér á vefnum. Svör við fyrirspurnum eru aðeins ætluð til fræðslu og upplýsingar en eiga á engan hátt að koma í stað faglegrar aðstoðar ljósmæðra, lækna eða annars fagfólks.
Því miður getum við ekki svarað öllum fyrirspurnum sem berast en leitumst fyrst og fremst við að svara fyrirspurnum um efni sem ekki hefur verið spurt um áður. Svör við fyrirspurnum birtast hér á síðunni ásamt fyrirspurninni sjálfri.