Ljósmóðir.is notar vafrakökur til að bæta notendaupplifun og stuðla að frekari þróun heimasíðunnar.
Upplýsingar um vafrakökur
15. apríl 2023
Góðan dag. Fæ svo oft sáran verk í kviðinn á þeirri hlið sem ég hef legið lengi á, t.d. þegar ég er búin að liggja lengi á vinstri hliðinni á nóttunni. Eru það togverkir eða mögulega eitthvað annað sem ég ætti að láta kíkja á?
Góðan dag, takk fyrir fyrirspurnina.
Það er algengt að finna fyrir togverkjum við nára og aðeins upp hliðina. Hér er ágætis mynd af legböndunum og svæðinu þar sem togverkir finnast. Togverkir eru oft meira stingandi og koma við álagshreyfingar líkt og að snúa sér. Það gæti verið hjálplegt að hafa lítinn púða undir bumbunni til að styðja við hana a nóttunni svo það myndist ekki jafn mikið álag.
Ef þú finnur mikinn verk eða hefur áhyggjur þá ráðlegg ég þér að ræða þetta við ljósmóður í meðgönguvernd. Gangi þér vel.
Kær kveðja, Elfa Lind Einarsdóttir, ljósmóðir.
Einnig viljum við benda á bæklingaröð Ljósmæðrafélags Íslands og greinarnar "Ljósmóðirin skrifar um", þar er að finna svör við mörgum af algengustu fyrirspurnunum.
Ljósmóðir mun leitast við að svara fyrirspurnum sem fyrst en athugið að það geta liðið allt að tvær vikur frá því að fyrirspurn er send inn og þar til svar er birt hér á vefnum. Svör við fyrirspurnum eru aðeins ætluð til fræðslu og upplýsingar en eiga á engan hátt að koma í stað faglegrar aðstoðar ljósmæðra, lækna eða annars fagfólks.
Því miður getum við ekki svarað öllum fyrirspurnum sem berast en leitumst fyrst og fremst við að svara fyrirspurnum um efni sem ekki hefur verið spurt um áður. Svör við fyrirspurnum birtast hér á síðunni ásamt fyrirspurninni sjálfri.