Legvarpið - hlaðvarp

28. janúar 2025

Legvarpið er hlaðvarp sem er í umsjón ljósmæðranna Stefaníu Ósk Margeirsdóttur og Sunnu Maríu Helgadóttur. Þar ræða þær vinkonur um ljósmæðratengd málefni líðandi stundar. Með hlaðvarpinu gera þær umræður og fræðslu aðgengilega foreldrum og öðru áhugafólki.

Legvarpið hefur verið starfandi frá árinu 2019 eða frá því að þær Stefanía Ósk og Sunna María voru ljósmæðranemar. Síðan þá hafa þær gefið út marga þætti, tekið fyrir mikilvæg og fjölbreytt málefni, frætt og fengið til sín reynslumiklar ljósmæður til að spjalla um ferilinn og deila sinni visku. Nú á dögunum fékk legvarpið til sín Bryndísi Ástu Bragadóttur sérfræðiljósmóður á Landspítalanum þar sem umræðuefnið var yfirþyngd og offita á meðgöngu.

Á næstunni koma út þættir sem meðal annars snúa að nikótín neyslu gg trans/kynsegin. Við hvetjum öll til að kynna sér legvarpið, hlusta, fræðast og eflast. Legvarpið er aðgengilegt á öllum helstu hlaðvarpsveitum.