B-vítamín á meðgöngu
27. mars 2025
Varðandi B vítamín og hámarks gildi þess daglega á meðgöngu, það eru nokkur mcg og mg af mismunandi B vítamínum í Mist drykkjum, svo eru 10 mcg af B12 í fólínsýru - er það samtals of mikið af B vítamínum á meðgöngu? Það er nokkuð óljóst í almennum upplýsingum/rannsóknum á vefnum
Sæl og takk fyrir fyrirspurnina,
Hámarksstyrkur B vítamíns er töluvert hærri en ráðlagður dagskammtur svo ólíklegt að þú farir yfir hámarkstyrk úr B-vítamíni sem leynist í matvörum sé þeim neytt í hófi.
Hér má lesa nánar um vítamín á meðgöngu.
Bestu kveðjur, Ilmur Björg Einarsdóttir, ljósmóðir.