Bílamálari á meðgöngunni
Hæhæ. Ég er að spá. Ég er komin 6 vikur og 4 daga. Vinn sem bílamálari, má ég alveg vera í vinnunni? Ég er búin að nota kolagrímu grimmt en svo var verið að tala um að það megi alls ekki vinna við þetta yfir höfuð á meðan ólétta á sér stað vegna ryksins og efnanna og það sé ekki nóg að vera bara með grímu.
Ég hef miklar áhyggjur af þessu. Vona innilega að þið getið hjálpað mér ❤️
Góðan dag og takk fyrir fyrirspurnina,
Líkt og þú hefur fengið upplýsingar um eru ýmis efni í bílamálningu sem geta reynst skaðleg á meðgöngu. Til eru ýmis ráð til að minnka útsetningu fyrir þessum skaðlegu efnum líkt og vinnustaðir sem þessir ættu að þekkja. Þó væri alltaf ráðlegra á meðgöngunni að sleppa því að vinna með þessum efnum og athuga hvort mögueiki sé á að fara í önnur verkefni innan fyrirtækisins. Endilega fáðu ljósmóður í meðgönguvernd til að aðstoða þig við að meta framhaldið, meðal annars hvernig vinnuastæður bjóðast og hvort þörf sé á vottorði.
Gangi þér vel.
Bestu kveðjur, Ilmur Björg Einarsdóttir, ljósmóðir.