Blæðingar 5 vikum eftir fæðingu
Góðan dag Nú eru 5 vikur síðan ég átti og úthreinsum kláraðist fyrir sirka 2 vikum. Fyrir viku síðan vaknaði ég við mikla blæðingu sem fossaði út. Það er búið að útiloka að eitthvað hafi orðið eftir af fylgjunni en ég var sett á sýklalyf. Frá því að þetta gerðist hefur blætt ferskt blóð hjá mér sem fer ekki minnkandi, eykst frekar en hitt. Önnur einkenni eru svimi og slappleiki. Er þetta eðlilegt eftir að úthreinsun líkur?
Góðan dag og takk fyrir fyrirspurnina,
Algengt er að úthreinsun eftir fæðingu taki um það bil 4-6 vikur en það er þó ekki algilt. Í upphafi er blæðingin fersk, rauðleit og magnið líkist ríflegum tíðarblæðingum. Blæðing ætti svo að fara minnkandi og verður þá brúnleitari og að lokum gulhvít.
Á 10. - 14. degi eftir fæðingu losnar hrúður sem hefur myndast yfir fylgjubeðinu og getur þá blæðing aukist í nokkra daga. Að öðru leiti ef það fer skyndilega að aukast blæðingin, blóðkögglar gera vart við sig, vond lykt eða vanlíðan til staðar er ráðlagt að leita til læknis.
Vegna blæðingarinnar sem þú lýsir og einkenna líkt og svima og slappleika myndi ég ráðleggja þér að leita álits hjá lækni. Hér getur þú nálgast frekari fróðleik um úthreinsun eftir fæðingu. Gangi þér vel.
Bestu kveðjur, Ilmur Björg Einarsdóttir, ljósmóðir.